Opnunarpartý HönnunarMars í Norræna húsinu
17:00-19:00
Norræna húsið tekur þátt í HönnunarMars 2020 með fjölbreyttri dagskrá og sýningum í fimm rýmum.
Formleg opnun á sýningunum fer fram föstudaginn 26. júní kl. 17-19. Hönnuðir verða á staðnum til að ræða við gesti og segja frá verkum sínum.
Ljúffengar veitingar í boði norrænu sendiráðanna á Íslandi og Norræna hússins. DJ Otto slær taktinn.
Sýningar og hönnuðir:
- Hvarfpunktur/Vanishing Point – Ragna Ragnarsdóttir
- anna – frumgerð af stól – Inga Rán Reynisdóttir & Ulrike Marie Steen
- HRINGIR – Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir
- Norsk klassík á íslenskum heimilum- Norska sendiráðið í Reykjavík
- Eldurinn í jörðinni – Leikskóli Seltjarnarness