OPEN CALL – Vilt þú spila tónlist í Vatnsmýrinni í sumar?
Pikknikk Tónleikaröðin er einn vinsælasti viðburður Norræna hússins og fastur liður í menningardagskrá þess. Tónleikaröðin fer fram í fallegu umhverfi gróðurhúss Norræna hússins á sumrin og laðar að sér bæði íslenska og erlenda tónlistarunnendur. Frítt er inn á alla tónleikana og einkum vinsælt er að sitja á grasinu í kring og njóta léttra veitinga þar sem tónlistin sameinast náttúrunni í eina fallega heild.
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir fyrir Pikknikk tónleikaröðina sumarið 2019. Umsóknarfrestur 28. febrúar 2019.
Við leitum að:
– Tónlist sem hentar vel að flytja utandyra án mikils hljóðkerfis.
– Tónlistarmönnum sem hafa gaman að því að tala við áhorfendur og kynna lög sín.
– Tónlist sem höfðar bæði til íslendinga og til ferðamanna.
– Tónlistarfólki/hljómsveitum sem getur spilað í takmörkuðu rými.
– Tónlist með norræna tengingu. Ath, ekki krafa.
Ef þú hefur áhuga á því að spila á Pikknikk Tónleikaröðinni 2019 sendu tölvupóst á umsjónarmann tónleikanna, Mikael Lind, fyrir 28. febrúar 2019. Í umsókninni skal koma fram; stutt lýsing á tónlistarmanni/hljómsveit, linkar á tóndæmi og/eða myndbönd. Þátttakendur fá greitt fyrir tónleikana.
Sendu póst
Efni: Pikknikk Tónleikaröð Norræna hússins
Mikael Lind
Netfang: mikaellind@nordichouse.is