![](https://nordichouse.is/wp-content/uploads/2016/08/stór-e1474641569824-1280x720.jpg)
Mýrin bókmenntahátíð
Mýrin
Alþjóðleg barnabókmenntahátíð verður haldin í Norræna húsinu dagana 6. – 9. október 2016. Innlendir jafnt sem erlendir höfundar munu skemmta gestum hátíðarinnar með upplestrum og vinnustofum. Þetta er í áttunda sinn sem hátíðin fer fram og eru þær jafnan kenndar við Vatnsmýrina og það þema sem valið er hverju sinni. Mýrarhátíðarnar byggja á fjölbreyttri dagskrá með þátttöku höfunda og fræðimanna, innlendra og erlendra.
Meðal atriða má nefna:
Upplestrar og kynningar í Norrræna húsinu
Fyrirlestrar höfunda og höfundaspjall
Fyrirlestrar bókmenntafræðinga
Sýningar og vinnustofur