Mýrin barnabókmenntahátíð
Alþjóðlega barnabókmenntahátíðin Mýrin verður haldin í tíunda sinn í Norræna húsinu dagana 14.-16. október 2021 undir heitinu Saman úti í mýri. Á hátíðinni er boðið upp á fjölbreytta dagskrá með þátttöku innlendra og erlendra höfunda og fræðimanna, fyrir fræðimenn, fagfólk, almenning, fjölskyldur, börn og skólahópa. Meðal atriða eru upplestrar, kynningar, fyrirlestrar, höfundaspjall, sýningar og vinnustofur.