Hreyfiafl myrkurs í norðrinu

Sameinuðu Þjóðirnar hafa útnefnt árið 2015 sem Alþjóðlegt ár ljóssins.


HREYFIAFL MYRKURS Í NORÐRINU
NÁTTÚRULEGT
TILBÚIÐ
MENNINGARLEGT
ÞVERFAGLEGUR LISTA- OG FRÆÐIVIÐBURÐUR
26-28. FEBRÚAR, 2015 REYKJAVÍK

Sameinuðu Þjóðirnar hafa útnefnt árið 2015 sem Alþjóðlegt ár ljóssins. Því viljum við kanna óendanlegar kóreógrafíur myrkurs og ljóss sem hafa áhrif á hversdagslíf íbúa Norðursins. Markmið þessa viðburðar er að draga saman ólík sjónarmið og skapa samtal milli mismunandi hópa þátttakenda, nemenda, fræðafólks, listamanna og almennings. Meðal viðfangsefn sem til umfjöllunar verða eru gæði myrkurs, myrkur og ljós í arkitektúr, norðurljós og ferðamennska og leikur að skuggum. Aðalfyrirlesar sem hafa staðfest komu sína eru Dr. Tim Edensor, Reader at the School of Science and the Environment, Manchester Metropolitan University pg Haraldur Jónsson, myndlistamaður.

Viðburðurinn er skipulagður af Land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands, the International Laboratory for the Multidisciplinary Study of Representations of the North at the Université du Québec à Montreal, Listaháskóla Íslands, í samvinnu við Norræna húsið í Reykjavík, Sendiráð Kanada á Íslandi og the Centre de recherche interuniversitaire sur la littérature et la culture québécoises.


Skipulagsnefnd

Daniel Chartier, Université du Québec à Montréal; Gunnar Thór Jóhannesson, Háskóla Íslands; Katrín Anna Lund, Háskóla Íslands; Hulda Stefánsdóttir, Listaháskóla Íslands; Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, Listaháskóla Íslands; Sigurjón Baldur Hafsteinsson, Háskóla Íslands; Karen Möller Sívertsen, Háskóla Íslands, Hildigunnur Sverrisdóttir, Listaháskóla Íslands; Þuríður Helga Kristjánsdóttir, Norræna húsið, Reykjavík og Stewart Wheeler, Sendiráð Kanada á Íslandi.
www.nord.uqam.ca