Félag áhugamanna um árshátíðir – Barnamenningarhátíð
Félag áhugamanna um árshátíðir – Barnamenningarhátíð í Norræna húsinu
Textílsýning eftir Eddu Mac í anddyri Norræna húsins
Bjartsýna-Bína kemur færandi hendi, Jafet geimfari mætir í vitlausum búning og Fyrirliðinn segir sama brandarann þriðja árið í röð. Þau eru öll í Félagi áhugamanna um árshátíðir. Félagið kemur saman annan laugardag febrúarmánaðar ár hvert. Að þessu sinni voru flosaðar portrettmyndir af öllum meðlimum og verða þær til sýnis í Norræna húsinu!
Edda Mac útskrifaðist með BFA gráðu frá Parsons vorið 2012. Hún hefur stundað nám í myndlist og textíl á Ítalíu, í Frakklandi, Suður-Kóreu og á Íslandi.
Sýningin er opin alla daga hátíðarinnar, 17.-22. april, kl. 10-17.
Tvær vinnusmiðjur verða í boði fyrir börn 10-12 ára í tengslum við sýninguna – fimmtudaginn 19. apríl kl. 13-15 og laugardaginn 21. apríl kl. 13-15. Vinnusmiðjunum stjórna þær Edda Mac og Bethina Elverdam. Þáttaka er ókeypis en skráning á tix.is er nauðsynleg. Ath! Takmarkaður aðgangur. Vinnusmiðjurnar fara frá á íslensku, dönsku og ensku.