Contingency Sample – örsýning
Anddyri
Aðgangur ókeypis
Í tilefni af pallborðinu Narrative Sovereignty og sýningu heimildamyndarinnar Orsugiak (The White Gold of Greenland) í Norræna húsinu þann 22 október, verður jafnframt sýnt úrval verka úr Contingency Sample, sýningu sem sett var upp í Verksmiðjunni á Hjalteyri sumarið 2026.
Sýningin tengir saman Kalaallit Nunaat (Grænland), Ísland og Jamaíku í gegnum krýólít, orku og báxít, þrjár grundvallarforsendur álframleiðslu. Titill sýningarinnar vísar til geimfara Apollo 11, sem æfðu á Íslandi fyrir tunglferðina og fengu þau fyrirmæli að taka sýni strax eftir lendingu, ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis.
Í Contingency Sample verður álið sjálft að slíku sýni, tekið í ljósi óvissrar framtíðar jarðar. Sýningin varpar þannig fram spurningu T. J. Demos: Hver hefur rétt til að framleiða framtíðina?
Sýningarskrá Contingency Sample
Sýningin í Verksmiðjunni var styrkt af: Myndlistarsjóð, Nordic Culture Fund, Nordic Culture Point Mobility,
Danish Art Council, SSNE, Hörgársveit og Svensk-isländska samarbetsfonden