
ABSENCED | Sýningaropnun
16:30
Velkomin á sýningaropnun ABSENCED þann 15. maí kl 16:30
– á Borgarbókasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu.
ABSENCED er myndlistarsýning með gjörningaívafi. Sýningarstjóri er listamaðurinn og aðgerðarsinninn Khaled Barakeh. Á sýningunni munu vélar framleiða og standa fyrir verkum listamanna sem hefur verið slaufað, ritstýrt, hótað eða refsað í Evrópu fyrir að opinbera stuðning sinn við Palestínu. Sýningin var áður sýnd í Borgarbókasafninu í Malmö árið 2024.
Sýningin mun standa í Borgarbókasafninu Grófinni fram til 25. maí og er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins, Khaled Barakeh og Norræna hússins en sýningin er einnig hluti að málþinginu Art & Democracy: Threats to Artistic Freedom þann 20. maí (aðgangur ókeypis).
Þátttakendur og listamenn eru: Adam Broomberg (listamaður), Anti Story (nafnlaust listaverkefni), Bastardilla (götulistamaður), Daniela Ortiz (listamaður), Ghayath Almadhoun (ljóðskáld), Halima Aziz (listamaður, Hamja Ahsan (listamaður, rithöfundur og sýningarstjóri), John Keane (prófessor), Johanna Tagada Hoffbeck (listamaður og menningarstarfsmaður), Liad Hussein Kantorowicz (listamaður, tónlistarmaður og feminískur aktívísti), Phoebe Walton (arkítekt og hönnuður), Raphaël Malik (ljósmyndari), ruangrupa (listamannarekin samtök og sýningarstjórar), Shahidul Alam (ljósmyndari), Taring Padi (samtök listamanna), and Tinne Zenner (listamaður og kvikmyndaleikstjóri).
Nánari upplýsingar um sýninguna:
Martyna Karolina Daniel, Verkefnastjóri fjölmenningarmála
martyna.karolina.daniel(at)reykjavik.is