ESKIMO – Mynd frá 1933
15:00
ESKIMO – kvikmynd frá 1933
ESKIMO ( einnig þekkt sem Mala the Magnificent and Eskimo Wife-Traders) er bandarísk „Pre-Code“ drama. Myndin er byggð á bókunum Der Eskimo og Die Flucht ins weisse Land eftir danska landkönnuðinn og rithöfundinn Peter Freuchen.
Kvikmyndinni var vel tekið af gagnrýnendum á frumsýningunni 14. nóvember 1933 og hlaut fyrst kvikmynda verðlaunin „Academy Award for Best Film Editing“.
Peter Freuchen skrifaði handritið að þessari Hollywood kvikmynd, byggði snjóhús fyrir hana og lék einnig í myndinni. Eskimo var fyrsta kvikmyndin þar sem talað var á tungumáli frumbyggja í Ameríku (Inupiat) og fyrsta kvikmyndin sem var kvikmynduð í Alaska. Við kvikmyndunina voru veiðisiðir og ýmsar menningarlegar athafnir frumbyggja Alaska myndaðar og þannig varðveittar. Framleiðsla myndarinnar fór fram í Teller í Alaska þar sem aðstæður voru skapaðar og byggt upp svo að hægt væri að koma bæði fólki og tækjum fyrir svo og vinnuaðstöðu.
ESKIMO verður frumsýnd á Íslandi í Norræna húsinu mánudaginn 18. apríl kl. 15:00.
Áður en kvikmyndin hefst verður kynning á henni sem Lawrence Millman flytur á ensku. Sýningartími er 101 mínúta.
Velkomin!
Ókeypis aðgangur