Forældre / Foreldrar (DK)
20:00
Foreldrar (DK)
Sýnd sunnudaginn 12. mars kl. 20:00 og miðvikudaginn 15. mars kl: 20:00
Kjeld og Vibeke, dönsk hjón á miðjum aldri, eru ekki alveg viss um hver þau eru án sonar þeirra. Esben er nýfluttur að heima og í fjarveru hans skoða þau sjálfsmynd sína. Þau reyna að endurheimta þrótt og töfra fyrri tíðar og flytja út úr húsinu sínu og inn í gömlu íbúðina þar sem þau bjuggu áður en þau urðu foreldrar og þar sem þau urðu fyrst ástfangin. Að endurheimta sín yngri ár breytir þeim á skrýtin og óvæntan hátt.
Foreldrar er sögð með hárbeittum norrænum húmor og ögn af súrrealisma. Þetta gerir myndina að kostulegri hugleiðingu um sjálfsmynd fjölskyldunnar og hvernig á að eldast með reisn. Myndin hefur hlotið nokkrar alþjóðlegar viðurkenningar og verðlaun.
Bóka frímiða
Sýnishorn
Dagskrá Nordic Film Festival 2017
Frumsýnd: 2016
Leikstjóri: Christian Tafdrup
Tegund: Drama
Lengd: 1h 26 min.