Jólaboð, Einar Áskell 


10:00-17:00
Anddyri & Bókasafn
Aðgangur ókeypis
Komdu í heimsókn á sýninguna okkar í tilefni útgáfu bókarinnar Jólaboð, Einar Áskell og komdu þér í jólaskap.
Bókin kom út í haust í Finnlandi, Þýskalandi og hér á Íslandi og er hún síðasta verk Gunillu Bergström.
Á sýningunni er hægt að lesa bókina, fræðast um Einar Áskel og höfundinn Gunillu Bergström, föndra jólaskraut og fara í göngutúr sem innblásinn er af Einari.
Gleðileg jól!
Opnunartími og aðgengi: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00. Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.