The Wave- Norræn kvikmyndahátíð
20:00
The Wave
Roar Uthaug NO/ 2015/ 100 mín/ Hasar/Drama / 15 ára
Þegar ógnarstór snjóhengja ógnar tilveru íbúa Geranger fjarðar í Noregi lendir jarðfræðingur í kapphlaupi við tímann.
Hér er að finna norska hamfaramynd sem byggir á þeirri staðreyna að þegar snjóhengja sem fyrirfinnst í Geiranger firði í Noregi fellur út í hafið skapast gríðar stór alda sem mun tortíma öllu því sem á vegi hennar verður og þar á meðal bænum sem liggur við rætur fjallsins.
Myndin kemur í kvikmyndahús í maí 2016.
Tungumál: norska/ Textar: enska
Aðgangur ókeypis!
Tryggðu þér frían miða á www.tix.is eða við innganginn.
Fordrykkur í boði Norska sendiráðsins
Þann 20 apríl kl 19:00 ætlar Sylfest Glimsdal , ráðgjafi hjá Norwegian Geotechnical Institute í Oslo að gefa gestum myndarinnar stutta kynningu á þeim landafræðilegu staðreyndum sem The Wave byggir á. Norska sendiráðið býður upp á léttar veitingar. Viðburðurinn fer fram á ensku.
Norræn kvikmyndahátíð hefur verið haldin í Norræna húsinu síðan 2012. Markmið hátíðarinnar er að kynna breitt úrval vandaðra kvikmynda frá Norðurlöndunum. Samstarfsaðilar hátíðarinnar eru sendiráð Norðurlandana á íslandi, AALTO Bistro og Bio Paradis.