Hver getur unnið umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2021? Tilnefningar kunngjörðar
11:30
Átta tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2021 verða kunngjörðar í Norræna húsinu föstudaginn 3. september kl. 11.30-12.00.
Verðlaunin munu renna til verkefnis þar sem eitthvað eftirtektarvert hefur verið lagt af mörkum til að stuðla að þróun í átt til sjálfbærra matvælakerfa.
Umhverfisráðherra Guðmundur Ingi Guðbransson mun kynna tilnefningarnar ásamt Rakeli Garðarsdóttur dómnefndarfulltrúa og aðgerðasinna. Fulltrúar úr ungmennaráði heimsmarkmiðanna munu segja frá sinni sýn á ábyrga framleiðslu og neyslu matvæla.
Í takt við þema verðlaunanna í ár verður boðið upp á grænan og vænan mat í gróðurhúsinu við Norræna húsið eftir viðburðinn.
Dagskráin er liður í lýðræðishátíðinni Fundi fólksins sem fer fram í og við Norræna húsið 3. og 4. september.
Tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs koma frá almenningi. Dómnefndinni bárust metfjöldi tillagna í ár eða samtals 138 tillögur að 109 verkefnum.
Markmið verðlaunanna er að efla vitund um náttúru- og umhverfisvernd á Norðurlöndum. Verðlaunin eru veitt norrænni starfsemi eða einstaklingi sem sett hefur fordæmi með því að samþætta virðingu fyrir umhverfinu í starfi sínu eða með því að sýna frumkvæði á annan hátt að sértækum aðgerðum umhverfinu til góða. Verðlaunaféð er 300.000 danskar krónur. Verðlaunin verða afhent 2. nóvember samhliða Norðurlandaráðsþingi í Kaupmannahöfn.
Frekari upplýsingar um verðlaunin má nálgast hér.