Vald yfir eigin sögu og ritskoðun: kvikmynd og pallborðsumræður
18:30-20:30
Vald yfir eigin sögu og ritskoðun:
Heimildarmyndin Orsugiak og pallborðsumræður
Norræna húsið í Reykjavík og Norræna stofnunin á Grænlandi (NAPA) bjóða til sýningar á heimildarmyndinni Orsugiak: The White Gold of Greenland (2025), sem fylgt verður eftir með pallborðsumræðum um vald yfir eigin sögu og ritskoðun á Norðurlöndum.
Að hafa vald yfir eigin sögu felur í sér rétt frumbyggja til að tala á eigin forsendum, segja eigin sögu og móta hvernig fjallað er um þau og samfélög þeirra. Þessi réttur er meðal annars tryggður í yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um réttindi frumbyggja (2007). En hvað gerist þegar frumbyggjar láta í sér heyra og gagnrýna nýlenduskipulagið? Hvernig eru ráðandi frásagnir notaðar til að þagga niður í og ritskoða raddir sem gagnrýna nýlendustefnu í samtímanum? Hvernig birtist ritskoðun í þessu samhengi?
Verið velkomin á sýningu á heimildarmyndinni og pallborðsumræður í kjölfarið:
Reykjavík | 22. október – Norræna húsið í Reykjavík
Nuuk | 28. október – NAPA
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Heimildarmyndin Orsugiak: The White Gold of Greenland (2025) fjallar um þessa togstreitu. Frá frumsýningu hennar hefur myndin varpað ljósi á mikilvægi þess að standa vörð um rétt fólks til að hafa vald yfir eigin frásögn og þann veruleika ritskoðunar sem getur blasað við þeim sem ögra ráðandi hugmyndum.

Myndin fjallar um námuvinnslu Dana á krýólíti í Ivittuut á vesturströnd Kalaallit Nunaat (Grænlands), sem stóð yfir frá 1854 til 1987. Krýólít er sjaldgæft steinefni sem meðal annars var notað við álframleiðslu. Það fannst í miklu magni á svæðinu og var unnið þar þar til námurnar tæmdust að lokum.
Heimildarmyndin er framleidd af kvikmyndaframleiðslufyrirtækinu Wintertales í samstarfi við Human Tales, með stuðningi Den Vestdanske Filmpulje. Að myndinni standa framleiðandinn Michael Bévort, rannsakandinn Naja Dyrendom Graugaard og leikstjórarnir Claus Pilehave og Otto Rosing. Myndin er sýnd á dönsku með enskum texta.
Þátttakendur í pallborðsumræðum
Naja Dyrendom Graugaard er dósent við rannsóknasetur um kyn, kynverund og margbreytileika (Center for Gender, Sexuality & Difference) innan deildar norrænna fræða og málvísinda við Kaupmannahafnarháskóla. Hún er rannsakandi af dönskum og grænlenskum inúítaættum og sérhæfir sig í nýlendutengslum Danmerkur og Kalaallit Nunaat, fyrr og nú.
Claus Pilehave er danskur handritshöfundur og leikstjóri heimildarmynda fyrir kvikmyndir og sjónvarp. Hann skrifaði handritið að The White Gold of Greenland og leikstýrði myndinni ásamt Otto Rosing.
Giti Chandra er rannsóknardósent við Jafnréttisskóla GRÓ í Reykjavík og í menningarfræði við Háskóla Íslands.
Inuk Jørgensen er margverðlaunaður kvikmyndagerðarmaður og virkur þátttakandi í grænlensku kvikmyndasamfélagi. Hann hefur setið í stjórn Félags grænlenskra kvikmyndagerðarmanna (Film.GL) um árabil og er þekktastur fyrir stuttmyndir sínar, sem eru oft umdeildar og fjalla um pólitísk, samfélagsleg og menningarleg málefni á stærstu eyju heims.
Ken Are Bongo er samískur leikstjóri og kvikmyndatökumaður frá Guovdageaidnu. Hann kemur úr fjölskyldu sem stundar hreindýrarækt og á djúpar rætur í landslagi, menningu og frásagnarhefðum norðurslóða. Eftir að hafa starfað um árabil við kvikmyndatöku fyrir kvikmyndir og sjónvarp þreytti hann frumraun sína sem leikstjóri kvikmyndar í fullri lengd með Ciao Ráhkis!. Verk hans einkennast af sterku myndmáli og áhuga á sögum þar sem ólíkir menningarheimar, fólk og veruleikar mætast á norðurslóðum.
Stjórnandi pallborðs:
Sólveig Ásta Sigurðardóttir er aðjunkt í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands.
Aðgengi í Elssu sal er gott, lágur þröskuldur er inn í salinn.
Frekari upplýsingar um aðgengi í Norræna húsinu er að finna hér.
Forsíðumynd: Michael Bévort