Vinnustofa í vetrarfríi


9:00-12:00
Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Börn á aldrinum 9-12 ára eru velkomin að skrá sig í tveggja daga ókeypis vinnustofu í Norræna húsinu.

Vinnustofan tekur innblástur af tveimur nýjum sýningum hússins: Kroppar og Kassar og Að holdgera byggingu. Þema sýninganna er samspil líkama og arkítektúrs þar sem sérstök áhersla er á hönnun Alvars, Elissu og Aino Aalto. Börnin munu fræðast og eiga samtal um arkítektúr og samspil þess við líkamann í gegnum list og skapandi æfingar.
Nemendur munu þróa og búa til sína eigin borg og hús úr endurvinnanlegum efnivið ásamt því að nota málningu, ljós og fleira. Stuttar hreyfismiðjur verða í boði báða daga þar sem við skoðum samspil líkamans við arkítektúr og rýmin sem við erum í.
Vinnustofan er ókeypis en skráning nauðsynleg.
Hægt er að skrá sig á vinnustofuna hér.
Verk á forsíðu: Myndskreyting eftir Eri Shimatsuka