Útgáfufögnuður listatímaritsins Lyng!


13:00-15:00
Anddyri
Aðgangur ókeypis

Ykkur er boðið að fagna útgáfu fyrsta tölublaðs listatímaritsins Lyng í Norræna Húsinu. Boðið verður upp á léttar veitingar, kynningu á starfsemi Heysahorn Art Collective og lifandi tónlist.

Hvað er Lyng?
Lyng er nýtt tímarit fyrir list í mynd og ræðu þvert á landamæri og menningarheima norðurslóðanna. Velska skáldið Grug Muse og íslenski Snæbjörn Jack sitja í ritstjórn. Síður fyrsta tölublaðsins eru skreyttar sköpunargleði fjölbreytts listafólks úr mismunandi menningarheimum norðurslóðanna. Úrvalið endurspeglar þema tölublaðsins „Varða“ og er handvalið af grænlensku kvikmyndagerðarkonunni Alberte Parnuuna.
Listafólkið í fyrsta tölublaði lyng eru
Annika Lynge (GL / DK)
Elva María Birgisdóttir (IS)
Iselin Kleppe Løvik (NO)
Llinos Anwyl (CYM)
Michelle Spinei (US / IS)
Tristan Zand (CH / IS)
Dagskrá:
13:10 Kynning á stefnuyfirlýsingu tímaritsins
13:20 Atriði (fleiri upplýsingar bráðum!)
14:00 Léttar veitingar
Tímaritið verður til sölu og sýnis á viðburðinum. Það er prentað í takmörkuðu upplagi. Okkur hlakkar til að sjá þig!
Útgáfa Lyng er styrkt af Vestnorræna höfuðborgarsjóðnum, Nordisk Kulturfond og Nordic Institute in Greenland. Gefið út í samstarfi við Norræna Húsið, TUTL Records, Nuuk Art Museum, Nuuk Local Museum, Cyhoeddiadau’r Stamp og Garg bookstore.