Ungt fólk – framtíðin á vinnumarkaði
13.15-14.45
Atvinnumál ungmenna verða rædd er Nordjobb, í samvinnu við Norræna félagið og Norræna húsið, efnir til málþings á Fundi fólksins, 3. september kl. 13.15–14.45 í Grósku.
Fjölbreyttur hópur aðila vinnumarkaðarins koma saman og fjalla um atvinnumál ungmenna, námsmanna og hinn samnorræna vinnumarkað.
Viðmælendur:
- Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra opnar viðburðinn
- Morten Fabricius Meyer, programchef Nordisk Jobløsning hjá FNF
- Sigmar Vilhjálmsson, athafnamaður
- Jónína Ólafsdóttir Kárdal, formaður Félags náms- og starfsráðgjafa
- Gundega Jaunlinina, Alþýðusamband Íslands
- Derek T. Allen, forseti LÍS Landssamtök íslenskra stúdenta
- Árni Grétar Finnsson, Samtök atvinnulífsins
- Hannes Björn Hafsteinsson, Nordjobb Íslandi
Á málþinginu verður m.a. fjallað um Nordjobb. Nordjobb er norrænt vi numarkaðsverkefni sem starfrækt hefur verið frá 1985. Tilgangur Nordjobb er að auka hreyfanleika á norræna vinnumarkaðinum með því að miðla störfum, upplýsingum, þekkingu og fræðslu til ungmenna á aldrinum 18-30 ára.
Fundurinn er hluti af dagskrá Fundar fólksins sem fer fram 3. og 4. september í Norræna húsinu, Grósku og Öskju.