Suurenmoinen Rosabel: höfundurinn Malin Kivelä mun lesa bókina
13:00
Malin Kivelä er finnlandssænskur rithöfundur, fædd í Helsinki 1974. Barnabókin ”Den ofantliga Rosabel” eftir Kivelä kom út árið 2017 og er ævintýri um lítinn einmana hest í hesthúsi þar sem stóru hestarnir ráða ríkjum. Sagan flytur okkur um draumaheima þar sem allt er mögulegt, líka fyrir litla hesta. Bókin er fagurlega myndskreytt af Linda Bondestam.
Á vegum Finnska skólans í Reykjavík er ykkur boðið í Barnabókasafn Norræna hússins þar sem höfundur mun lesa finnska útgáfu bókarinnar.
Viðburðurinn er laugardaginn 25. janúar kl. 13, aðgangur er frír og allir velkomnir.