Fangelsisvist: Betrun eða niðurrif? – Streymi


13:00

Knut Storberget, þingmaður norska Verkamannaflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra Noregs, verður frummælandi á málfundi Samfylkingar og Pírata, um betrunarmál, föstudaginn 29. janúar, kl. 13-15 í Norræna húsinu.

Streymt verður frá fundinum hér á vefnum. Fundurinn fer fram á ensku og íslensku.

Norsk stjórnvöld fóru í gagngera endurskoðun á fangelsiskerfi sínu á árunum 2007-2008, í dómsmálaráðherratíð Knut Storberget og hefur betrunarkerfi Norðmanna vakið heimsathygli á undanförnum árum. Fjallað hefur verið um norsku fangelsin Bastoy og Halden í virtum fjölmiðlum víða um heim, meðal annars á CNN, í New York Times og Guardian.

í Noregi er endurkomutíðni í fangelsi mjög lág. Betrunarstefna sú sem Norðmenn hófu að innleiða fyrir tæpum áratug lofar mjög góðu. Þar eru markmið afplánunar skýr en afplánun á að vísa fram á veginn og tryggja farsæla endurkomu út í samfélagið. Menntun, starfsþjálfun og vímuefnameðferðir eru mikilvægir þættir í þessu ferli og Norðmenn njóta einnig sérstöðu vegna áherslu þeirra á opin fangelsi fremur en lokuð öryggisfangelsi. Hlutfall þeirra sem afplána í opnum fangelsum er mun hærra í Noregi en hér á landi. „Út í lífið“ prógram Norðmanna tekur svo við þegar afplánun lýkur. Með „Út í lífið“ tengja Norðmenn sveitarfélögin og frjáls félagasamtök inn í ferlið með það að marki að fangar hafi öruggt húsaskjól og eitthvað að hverfa að þegar afplánun líkur.

Nú þegar frumvarp til nýrra laga um fullnustu refsinga er til umræðu á Alþingi er tilvalið að spyrja hvernig nýja stefnan gangi hjá Norðmönnum og hvað við hér á Íslandi getum lært af þeim.

Dagskrá málfundarins:

13.00 Ávarp innanríkisráðherra, Ólöf Nordal.

13.15 Erindi, Knut Storberget „Thinking new; punishment that works”

14.00 Knut Storeberget situr fyrir svörum

14.30 Pallborðsumræður

Í pallborði sitja:

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu,

Guðrún Sesselía Arnardóttir, hrl,

Jón Þór Kvaran, meðferðarfulltrúi á Litla Hrauni,

Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunnar.

Aðalheiður Ámundadóttir stjórnar pallborðsumræðumFundarstjóri: Sigríður Ingibjörg Ingadóttir

 

Viðburður: https://www.facebook.com/events/1837596109800431/