Sögustund á sunnudegi – sænska


11:30-12:00
Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Öll fjölskyldan er velkomin á sænsk sögustund sem fer fram í barnabókasafni Norræna hússins.

Lesnar verða stuttar sögur á sænsku. Að upplestri loknum er gestum velkomið að vera áfram og nýta sér aðstöðu safnsins og í boði verða blöð og litir fyrir áhugasama.

Sögumaður er Inga Birna Friðjónsdóttir. Inga er tónlistarkona og fatahönnuður sem bjó fyrstu 10 ár ævi sinnar í Svíþjóð. Hún hefur unnið við og kennt skapandi greinar í grunnskólum og félagsmiðstöðvum víðsvegar á Íslandi. Hún gefur út tónlist undir nafninu Blankiflúr.