Sögustund á íslensku
14:30
Íslensk sögustund í Barnahelli – barnabókasafni Norræna hússins.
Lesið er á íslensku úr bókum bæði eftir íslenska rithöfunda og höfunda frá hinum Norðurlöndunum. Eftir upplesturinn er hægt að leika sér í Barnahelli en þar er að finna ótalmargar barnabækur, spil, liti og leikföng.
Öll börn á aldinum (+/-) 2-10 ára eru hjartanlega velkomin ásamt fjölskyldum sínum.
Telma Rós Sigfúsdóttir leiðir sögustundina.
2. nóvember sögustund á norsku
3. nóvember sögustund á sænsku
10. nóvember sögustund á dönsku
10. nóvember sögustund á færeysku