Sænska tvíeykið Gursus


20:00

Sænska tvíeykið Gursus kemur til Íslands.

Gríptu tækifærið og upplifðu hvernig þau á skemmtilegan hátt tvinna saman þjóðlagatónlist og jazz.

Kaupa miða.

Óvæntir fundir. Óvæntar sögur. Óvænt tónlist
Tvíeykið sem saman stendur af þjóðlaga fiðlararanum Sven Midgren og jazz saxófónleikaranum Ida Karlsson sem hittust fyrst mjög óvænt um borð í lest. Saman spila þau fjöruga, öfluga og svipmikla tónlist.Tónlistin dregur rætur sínar frá hefðbundnum þjóðlögum og frjálsum, formlegum jazzi og spuna.

Heitir tónar eru einkennandi fyrir stíl Idu sem bráðna saman við magnað spil Svens. Hljóðið verður fast og heiðarlegt og þú kemst svo nálægt því að þú finnur lyktina af eldinum frá litla húsinu þar sem tvíeykið æfir sig og undirbýr nýja tóna.

Tónlistarmennirnir eru bæði vel þekkt meðal yngri kynslóða í tónlistarheiminum

Ida Karlsson er saxófónleikari og tónskáld. Hún spilar meðal annars með jazz hreyfingunni Medi og swing band hljómsveitin Who´s Your Mama – WYM, auk Kathrine Windfeld Big Band (DK). Hennar eigin kvartett IKQ hefur verið sagður leika tónlist með skýrum áhrifum frá jazzi, tónlist sjöunda áratugarins og norrænni þjóðlagatónlist.

Sven Midgren er þjóðlagatónlistarmaður með djúpar rætur í hefðir suður-Svíþjóðar. Hann hefur leikið með skandinavísku hljómsveitinni Tranotra sem kafar djúpt í fornar hefðir sænskrar þjóðlagatónlistar. Fiðluleikur Sven hefur bæði róandi og eflandi áhrif enda blandar hann saman tónlist  og frásögn sem fer með áhorfandann í einstaka ævintýraferð.

Gursus er á tónleikaferðalagi um Ísland – aka. Tour af Óvænt

Á ferðalaginu mun tvíeykið spila tónlist sína á einstökum stöðum víðsvegar um Ísland.

* * * * Dagskrá* * * *

30. ágúst – Vatnasafn, Stykkishólmur kl. 20:00, ókeypis

1. sept. – Hveravellir, ókeypis

2. sept. Reykjahlíðarkirkja, Mývatn, kl. 20.30, aðgangur 2.000 kr.

3. sept. Tvísöngur hljóðverk, Skaftfell myndlistarmiðstöð austurlands, Seyðisfirði, kl. 17.00, ókeypis

5. sept. Norræna húsið, Reykjavik, kl. 20.00, aðgangur 2.000 kr.

Hér er hægt að nálgast viðburð á fésbók og aðra frekari upplýsingar.