Ójöfnuður á Íslandi – bókakynning


12:00 - 14:00

Ójöfnuður á Íslandi – bókakynning

Kynning á nýrri bók frá Háskólaútgáfunni: Ójöfnuður á Íslandi, í Norræna húsinu föstudaginn 1. desember kl. 12. Höfundar eru Stefán Ólafsson og Arnaldur Sölvi Kristjánsson og kynna þeir bókina

Þessi bók fjallar um hvernig tekju- og eignaskipting á Íslandi þróaðist frá millistríðsárunum til samtímans. Sýnt er hversu ójafnt tekjur og eignir skiptust fyrir stríð en urðu svo mun jafnari á eftirstríðsárunum. Í um hálfa öld voru Íslendingar, ásamt öðrum norrænum þjóðum, með einna jöfnustu tekjuskiptingu sem þekktist í heiminum. Þjóðfélagið tók síðan stakkaskiptum með verulegri aukningu ójafnaðar á rúmum áratug fram að hruni fjármálakerfisins árið 2008. Þau umskipti tengjast einkum breyttu þjóðmálaviðhorfi og nýjum aðstæðum sem eiga rætur að rekja til stjórnmála, hnattvæðingar og fjármálavæðingar.

Þetta er í senn saga mikilla umskipta og raunar mikillar sérstöðu íslensks samfélags. Meginmynstrið í langtímaþróun ójafnaðar á Íslandi var þó svipað og hjá mörgum vestrænum þjóðum, eins og fram kemur í rannsóknum Thomas Piketty og félaga. En sveiflur milli jafnaðar og ójafnaðar voru óvenjumiklar á Íslandi.

Bókin byggist á viðamiklum greiningum og alþjóðlegum samanburði á skiptingu tekna og eigna en þróun ójafnaðarins er sett í samhengi við einkenni íslenska samfélagsins til lengri tíma: atvinnuþróun, stjórnmál, stéttaskiptingu, hugarfar, kynjamun, skattamál, vinnumarkað, velferðarríki og þjóðarauð.

Ójöfnuður á Íslandi er grundvallarrit um þróun íslensks samfélags, stjórnmál og lífskjör.

Allir velkomnir! 

Heimasíða bókarinnar