Mill – Pikknikk tónleikar


15:00

Norræna húsið opnar glerdyrnar að nýju og býður þér á tónleika undir björtum himni, alla sunnudaga í sumar kl. 15:00. frá 16. júní – 11. ágúst 2019. Tónleikaröðin fer fram í fallegu umhverfi gróðurhúss Norræna hússins og laðar að sér bæði íslenska og erlenda tónlistarunnendur. Frítt er inn á alla tónleikana.

Hanna Mia er sænsk-íslenskt söngvaskáld, betur þekkt sem Mill.
Mill hefur heldur betur verið iðin við tónlistarsköpun síðastliðið ár. Hún hefur samið eitt lag á dag og sett inn á YouTube síðustu 365 daga. Á
Pikknikk tónleikum hennar í Norræna húsinu mun Mill flytja hápunktana frá þessu ferli í samstarfi við vini og námsfélaga frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands.
 

Veitingarsala á Aalto Bistro

Dagskrá Pikknikk 2019

16/6 Kristian Anttila (SE)
23/6 A Band on Stage
30/6 Pálsson Hirv Dúettinn
7/7 Myrra Rós
14/7 Árni Vil
21/7 Omotrack
28/7 Bagdad Brothers
4/8 Mill (IS/SE)
11/8 Elín Harpa

 

Skoða fleiri viðburði