Manitaa House – jólabasar & matur


12-16

Verið velkomin á jólabasar Manitaa House í Norræna húsinu laugardaginn 16. nóvember kl.12-16.

Allt okkar uppáhalds ,,fair-trade” handverk verður til sölu á geggjuðu verði, allt að 50% afsláttur.
Dæmi: Eyrnalokkar á 1.000 kr., hálsmen á 1.500 kr., armbönd á 800 kr. og fullt fleira!

Enn fremur verður á boðstólnum hefðbundinn Fulani ættbálka matseðill á 2.000 kr.
1. Vegan baunasúpa + „beignets“
2. Soya (lamba roti í anda N-Kamerún) + „beignets“
Drykkir: Hefðbundinn hibiscus safi (bisap) og mjólk með möndlum (dakere)

Barnvænt umhverfi. Njótum góðra veitinga og verslum fair-trade í jólapakkann á góðu verði.

Viðburðurinn er skipulagður af Manitaa House