Malin G Thunell (SE) – Pikknikk tónleikar


15:00-16:00

Malin G Thunell er hæfileikaríkur söngvari og tónskáld sem hefur aðallega verið að fást við þjóðlagatónlist. Með heiðarleika og forvitni að leiðarljósi tvinnar hún saman sænskri þjóðsöngvahefð og nýjum hljómum. Malin hefur einnig verið að fást við tækni og nýtir sér margskonar leiðir til að flytja tónlist sína. Eins og með því að nota rödd sína og líkama sem hljóðfæri.

Hlusta

Viðburðurinn er á facebook hér.

Norræna húsið opnar glerdyrnar að nýju og býður þér á tónleika undir björtum himni, alla sunnudaga í sumar kl. 15:00. frá 24. júní – 19. ágúst 2018. Tónleikaröðin fer fram í fallegu umhverfi gróðurhúss Norræna hússins og laðar að sér bæði íslenska og erlenda tónlistarunnendur.

Frítt er inn á alla tónleikana. 

Veitingarsala á Aalto Bistro.

 

Dagskrá

24. júní. Ari Árelíus (IS)
1. júlí. Ösp Eldjárn (IS)
8. júlí. Snorri Helgason (IS)
15. júlí. Silja Rós (IS)
22. júlí. Teitur Magnússon (IS)
29. júlí. Flekar (IS)
5. ágúst. Nightjar (SE)
12. ágúst. Malin Thunell (SE)
19. ágúst. Hildur Vala (IS)