Málað með jökulleir – smiðja fyrir alla fjölskylduna á Barnamenningarhátíð!


13:00-15:00
Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Gestir eru velkomnir í vinnusmiðju á barnam.hátíð með myndlistarkonunni Írisi Maríu Leifsdóttur þar sem hægt er að prófa að mála með jökulleir.

Íris María býður upp á leir frá Svínafellsjökli, Breiðamerkurjökli og Sólheimajökli sem málað er með á vatnslitapappír. Einnig verða notaðir vatnslitir.

Mælum með fyrir gesti að skoða sýninguna Gárur: Umbreytingar á norðurslóðum fyrir innblástur áður en hafist er  handa við að mála jökulmyndir með jöklaleir.

Hægt er að skoða afrakstur verka barna úr nokkrum grunnskólum Reykjavíkur á sýningunni Innblásin af norðri sem stendur yfir á dögum hátíðarinnar.

Íris María stundar nám í listkennslu við Listaháskóla Íslands og útskrifast með kennsluréttindi í sumar. Hún hefur lokið mastersnámi í myndlist við Listaháskóla Íslands, bakkalárgráðu í félagsfræði við Háskóla Íslands og tveggja ára listmálaranámi við Myndlistaskóla Reykjavíkur. Hún hefur sýnt verk sín á fjölda sýninga, þar má nefna Listasal Mosfellsbæjar, Nýlistasafnið, Listasafn Árnesinga og á Grænlandi.

Aðgengi í Norræna Húsið: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00. Viðburðurinn fer fram á íslensku.

Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.

Aðrir viðburðir