Kvikmyndasýning: Skál og samtal við höfund
18:00
Við bjóðum til sýningar á færeysku heimildarmyndinni Skál, sem fjallar um skáldið og tónlistarkonuna Daniu O. Tausen. Myndin, sem er leikstýrð af Mariu Tórgarð og Cecilie Debell, fjallar um sjálfsmynd, trú, ást, frelsi og þá leit að jafnvægi sem fylgir því að finna sinn eigin stað í lífinu.
Skál hlaut verðlaunin Best Film í New Nordic Voice-flokknum á Nordisk Panorama, þar sem dómnefndin lagði meðal annars áherslu á einlæga frásögn, sterka listræna sýn og fallega myndræna framsetningu.
Að sýningu lokinni leiðir Silje Beite Løken samtal við Daniu, þar sem gefst tækifæri til að ræða myndina, sköpunarferlið og þau persónulegu og samfélagslegu viðfangsefni sem hún tekur á.
Sýningin er i samstarfi við Færeyska sendiráðið á Íslandi.
Ókeypis er inn á viðburðinn og öll eru velkomin.
Upplýsingar um aðgengi má finna hér.

