Kutikuti: Sýning á ganginum


Anddyri
Aðgangur ókeypis

Á sýningunni gefur að líta safn listaverka, bæði frumrit og eftirprent eftir sex félaga í hópnum Kutikuti sem heimsóttu Ísland í apríl 2022.

KUTIKUTI er félag um samtíma myndasögur sem var stofnað í Finnlandi árið 2005 og er rekið af af hópi listamanna. Kjarni Kutikuti samanstendur af u.þ.b. fimmtíu meðlimum sem skapa, kenna og gefa út myndasögur. Við störfum á alþjóðavettvangi með það að markmiði að viðhalda og þróa myndasögur sem listgrein. Aðild að Kutikuti samtökunum er í boði fyrir samtíma myndasögulistamenn sem búa og starfa í Finnlandi.

Um Listamennina:

  • Verk Terhi Ekebom eru rannsóknir á myrkum vetrarnóttum í Finnlandi og draumkenndum heimi uglunnar.
  • Heikki Rönkkö kynnir stutta hugleiðingu um hita og vatn á plánetunni Jörð.
  • Grafísk skáldsaga Hanneriinu Moisseinen sýnir gamla mjólkurstúlku sem þráir kýrnar sínar.
  • Teikningar Miissa Rantanen fjalla um líf uglna og skammtaeðlisfræði.
  • Sanna Hukkanen teiknar tengsl trjáa og manna og ímyndar sér leiðir til að lifa af í þessum heimi.
  • Emmi Valve sýnir grafísk prentverk.

www:
https://www.sannahukkanen.com/
https://www.instagram.com/terhiekebom/


https://cargocollective.com/moisseinen/
www.heikkironkko.com/

Listaverkin verða til sölu á milli 21. – 24.4.