Klassík í Vatnsmýrinni: Á vængjum söngsins


20:00

Hlín Pétursdóttir Behrens sópran og Peter Maté píanóleikari flytja dagskrá helgaða rómantíkinni. Þrjár perlur eftir Felix Mendelssohn-Bartholdy, ljóðaflokkurinn „Brautlieder“ eftir Peter Cornelius og Op. 48 eftir Edvard Grieg eru á dagskrá en seinni hluti kvöldsins er helgaður íslenskum sönglögum 20. og 21. aldar, m.a. með tónlist eftir Hildigunni Rúnarsdóttir og Þuríði Jónsdóttur.

Hlín Pétursdóttir Behrens stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónlistarháskólann í Hamborg og var fastráðin við Pfalztheater Kaiserslautern og Staatstheater am Gärtnerplatz í München og söng í óperusýningum og á tónleikum í Þýskalandi, Sviss, Austurríki, Frakklandi og Svíþjóð um 12 ára skeið, en flutti heim árið 2004. Hér heima hefur hún haldið ljóðatónleika, komið fram kammertónleikum og kirkjutónleikum og sungið á Sumartónleikum í Skálholti. Á Myrkum músíkdögum 2018 frumflutti hún verk eftir Unu Sveinbjarnardóttur og Elínu Gunnlaugsdóttur og á Hljóðön 2015 flutti hún dagskrá með verkum eftir Kaiju Saariaho. Hjá Íslensku óperunni hefur Hlín sungið hlutverk Musettu í La Bohème og Chlorindu í Öskubusku og Ännchen í Galdraskyttunnu á vegum Sumaróperunnar og Listahátíðar í Reykjavík.

 

Peter Maté lauk einleikara- og kennaramastersgráðu úr Tónlistarakademíunnni í Prag og vann á námsárunum til margra verðlauna í heimalandi sínu og í alþjóðlegum keppnum, svo sem í Vercelli og Enna á Ítalíu 1986 og 1989. Peter hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1990 og haldið einleikstónleika, leikið einleik með ýmsum sinfóníuhljómsveitum og tekið þátt í kammertónleikum t.d. með Tríói Reykjavíkur og Kammertríói Kópavogs víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Peter kennir við Menntaskólann í Tónlist og er prófessor og fagstjóri hljóðfæranáms við Listaháskóla Íslands.

 

Aðgangseyrir er kr. 3.000, 2.000 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja, ókeypis fyrir nemendur og gesti 20 ára og yngri. Klassík í Vatnsmýrinni er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna – klassískrar deildar FÍH í samvinnu við Norræna húsið.

Miðasala á tix.is 

 

Aalto bistro er opið til kl 21.30 á tónleikadag