Hyggestund – Skordýr úr felti


Aðgangur ókeypis

Öll eru velkomin í smiðju í tengslum við sumarsýningu barnabókasafnsins: Leyndarmál skordýranna, með textíl hönnuðinum Álfrúnu Pálmadóttur.

Sumarsýningin skoðar hulinn heim skordýra í norrænu löndunum og í smiðjunni verður hægt að gera sín eigin skordýr úr litríku felti. Hægt verður að setja svip á skordýrin með plast augum og pípuhreinsar geta breyst í fætur og útlimi skordýranna. Gestum er boðið að taka skordýrin með sér heim eða skreyta tjald í miðju rými barnabókasafnsins.

Álfrún Pálmadóttir er yfirkennari textíldeildar Myndlistaskólans í Reykjavík og starfar við iðnaðarprjón hjá verksmiðjunni Varma. Hún er með diplómu í textíl frá Myndlistaskólanum í Reykjavík, bakkalárgráðu í þjóðfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í prjóni frá Konunglega listaháskólanum í Brussel.

Vinnustofan er ókeypis og öll eru velkomin!

 

Aðgengi