Drawings of animals and architecture

Hreyfismiðja fyrir börn 6-9 ára


14:30-15:15
Elissa Auditorium & Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis
Sóley Ólafsdóttir heldur hreyfismiðju fyrir börn á aldrinum 6-9 ára í tengslum við sýninguna Kroppar og Kassar. Sóley er danslistakona sem hefur mikla reynslu af kennslu og hefur m.a. haldið skapandi námskeið fyrir börn og ferðast um landið í tengslum við sýninguna hennar Kanlínudans, sem er dansverk fyrir börn eftir hana og danshöfundinn Leevi Mettinen.
.
Námskeiðið mun byrja með leikjum og æfingum uppi í sal, þar sem við tengjum okkur við rými og arkitektúr með skemmtilegum hreyfingum. Sóley mun kenna stuttan dans í tengslum við bókina Kort Trönunnar – Ævintýri í bygjuskógi. Sagan fylgir persónunum Kanínu og Birni sem fylgja korti og á leiðinni uppgötva þau form og hönnun sem eru innblásin af verkum Alvars Aalto. Leiðin mun síðan halda niður á barnabókasafnið þar sem farið verður í könnunarleiðangur með hreyfingar í gegnum nýju sýninguna okkar.
.
Hreyfismiðjan fer fram á íslensku og ensku.
.