Fyrirlestar í náttúruvísindum


18:00 -

Með fyrirlestraröðinni Almennir fyrirlestrar í náttúruvísindum  er hægt að kynna sér það nýjasta í vísindunum.

 Norræna húsið streymir nokkrum vel völdum fyrirlestrum í náttúruvísindum frá Háskólanum í Árósum. Fyrirlestraröðin byggir á nýjum vísindalegum uppgötvunum og/eða nýjum upplýsingum sem annað hvort fella eða styðja við eldri tilgátur og kenningar í fræðunum.

Fyrirlestrarnir eru allir á háskólastigi,  fara fram á dönsku og eru öllum opnir. Ókeypis aðgangur.

Pása er haldin í miðjum fyrirlestri og áhorfendur geta notað tækifærið til umræðna sem og sent inn spurningar með sms eða á twitter. Boðið er upp á kaffi í pásunni.

 

Fyrsti fyrirlesturinn í röðinni sem streymt er í Norræna húsinu frá Árósum (í beinni) ber heitið;  Hversvegna manneskjan yfirtók heiminn / Hvorfor mennesket erobrede kloden. Streymið hefst kl. 18:00. Nánar um fyrirlesturinn á dönsku hér

Fyrirlesarar:
 Mikkel Heide Schierup
 Trine Bilde

 

 

Fyrirlestrarnir eru aðeins aðgengilegir í Norræna húsinu og því ekki á netinu. 

Kynningarmyndband

Fyrirlestrunum er streymt í háskólum, bókasöfnum og víðar í Danmörku, Færeyjum, Grænlandi og nú á Íslandi.

Vefsíða fyrirlestranna: https://ofn.au.dk/

Facebook síða fyrirlestraraðanna: https://www.facebook.com/OffentligeForedrag/

Nánari upplýsingar veitir

Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir
kristbjorg@nordichouse.is