Fjárfestum í hönnun// HönnunarMars 2026


12:00-13:30
Elissa Auditorium
Aðgangur ókeypis

Einn af lykilviðburðum HönnunarMars síðustu ára hefur verið málþingið og pallborðsumræðurnar Fjárfestum í hönnun. Í ár verður ekki brugðið út af vananum og mun einvalalið úr hönnunarheiminum stíga á stokk.

Í ár verður fókusinn settur á fatahönnun og fjárfestingar og árangur í þeim geira hönnunarheimsins. Að baki hverrar hönnunarlínu er fjöldi ára af vinnu sem lítur að mörgu öðru en hönnuninni sjálfri, vinnu sem oftast er hulin öðrum en þeim sem í geiranum starfa. Vel lukkað hönnunarmerki þegar kemur að fatahönnun þarf að öllu öðru slepptu að huga vel að langtímamarkmiðum og setja gæðin á oddinn á öllum stigum framleiðslunnar.

Þeir reynslumiklu einstaklingar sem taka þátt í málstofunni og segja frá sinni reynslu í fatahönnun og framleiðslu á ólíkum stigum eru eftirfarandi:

Steinunn Sigurðardóttir er eigandi og stofnandi vörumerkisins STEiNUNN. Hún er þekkt fyrir einstakt handbragð, sköpunargáfu og sjálfbæra nálgun í hönnun sem mótast hefur á löngum ferli sem hönnuður hjá sumum af stærstu tískuhúsum heims. Verk hennar einkennast af skúlptúrískri prjónahönnun og áferð sem mótast af djúpri tengingu hennar hennar við náttúruna.

Vera Thordardottir hefur sérhæft sig í stefnumótun og skapandi vinnu með lúxus vörumerkjum og tískuhúsum. Vera er staðsett á mörkum hönnunar, menningar og viðskipta og hjálpar vörumerkjum að raungera skapandi sýn í árangur og fjárhagslegt virði á viðskiptahlið rekstursins. Hún er eigandi AQVAROSSA og meðstofnandi Bears Ice Cream Imaginarium. Hún hefur einnig kennt við Istituto Marangoni og vinnur þar að auki að bók fyrir Routledge.

Rylé Tuvierra starfar sem listrænn ráðgjafi og áhrifavaldur sem starfar þverfaglega á sviði tísku, menningar og stafrænna frásagna. Hán er þekkt fyrir að ná að fanga undirtóna menningar og upplifunar á stórum tískuvikum líkt og í París, Mílanó og Kaupmannahöfn.

Karítas Diðriksdóttir stýrir umræðum sem fara fram á ensku.

Aðgengisupplýsingar um rými Norræna hússins er að finna með því að smella hér.