DoPPler – danssýning


20:00

Miðasala 

«DoPPler can be regarded as a rare example of real interdisciplinary: Theater-based wisdom is combined with dance-tech feudal force and musical sensation, all in close collaboration with excellent musicians. In addition, the choreographer is able to express something as if it is masculine/feminine, serious/playful, and vulnerable and powerful in human interaction, contributing to this artistry as one of the most exciting choreographers of today.» From Norwegian Critics Award in 2016

Dans- og gjörningahópurinn Kartell heldur sýningu í Norræna húsinu þann 20. október kl. 20.

Miðaverð er 2000 kr. Miðasala á tix og á linknum hér fyrir ofan.

Sýningin er bæði tilgerðarlaus og fjörug og gengur út á að skoða huga kvenna og karla. Hún lýsir hugarástandi sem ýmist getur verið óútreiknanlegt, ofbeldisfullt, ástríkt, biturt og umhyggjsamt og haft bæði góðar og slæmar afleiðingar í för með sér. Dansinn er í senn alvarlegur, hversdagslegur og viðkvæmur og er túlkaður af þremur karldönsurum frá Kartellet í gegnum leik, þjóðdansa og loftfimleika. Tónlistin sem notuð er í sýningunni er eftir Ragnhild Furebotten og Helge Norbakken og er með þjóðlegu sniði. Áhorfendur sitja í miðju rýminu og fá þannig dansinn og tónlistina beint í æð.

DoPPler er samvinnuverkefni milli tónlistarkonunnar og tónskáldsins Ragnhild Furebotten og dansarans og danshöfundarins Sigurd Johan Heide.

Dansarar:
Inge Martin Helgesen
Eirik Fuglesteg Luksengard
Ådne Kolbjørnshus

Danshöfundur: Sigurd Johan Heide/Kartellet
Tónskáld: Ragnhild Furebotten

Tónlistarflytjendur:
Ragnhild Furebotten – fiðla
Ole Jakob Larsen– perkusjon

Útsetning: Kartellet
Framleitt af: Henrik Lamark/Nordland Musikkfestuke
Myndband: https://www.youtube.com/watch?v=y2tBY8B4WKU

Kartell var upphaflega danssýning eftir Sigurd Johan Heide við frumsamda tónlist eftir Mariann Torset. Dansekompaniet og Kartellet A/S hafa verið sameinuð og þau hafa sett upp 4 sýningar frá árinu 2012.

Kartell leggur áherslu á líkamlega samvinnu milli karlmanna. Allir dansararnir hafa sinn eigin persónulega stíl og sýna líkamlegu hæfileika sína til að skapa nánd við áhorfendur. Sýningin er fjörug og villt og gengur út á að skoða karlmanninn útfrá líkamlegu atgervi hans. Lifandi tónlist er alltaf notuð við sýningarnar.

Hér má lesa nánar um danshópinn