DAGUR NORÐURLANDA 2024


16:30 - 18:00
Salur
Aðgangur ókeypis

Norðurlönd framtíðarinnar: Aukið samstarf í þágu friðar og öryggis

Í tilefni dags Norðurlanda, sem markar undirritun Helsinki-sáttmálans árið 1962, blásum við til málþings um framtíð norræns samstarfs í breyttu geópólitísku landslagi.

Í heimi sem einkennist af auknum átökum, skautun og fordómum í garð minnihlutahópa, standa Norðurlöndin nú á mikilvægum krossgötum. Þar sem norrænt samstarf stendur frammi fyrir nýjum áskorunum, en einnig tækifærum, hefur Norðurlandaráð ákveðið að hefja endurskoðun á Helsinki-sáttmálanum – sem oft er kallaður norræna stjórnarskráin. Meðal þess sem verið er að meta er hvort norrænt samstarf eigi einnig að taka til öryggis og viðbúnaðar.

Hvaða áhrif gæti þetta víðtæka endurmat á norrænu samstarfi haft för með sér? Hvernig geta Norðurlöndin saman staðið vörð um frið, mannréttindi og öryggi? Hvaða hlutverki gegnir aukin samvinna við að tryggja stöðugleika á umbrotatímum?

Viðburðurinn fer fram á ensku. Léttar veitingar verða í boði þegar dagskrá lýkur kl. 18.00.

Hægt verður að fylgast með viðburðinum í streymi hér.

Erindi:
Veslemøy Hedvig Østrem, ritstjóri Altinget.no
Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður og meðlimur í Norðurlandaráði

Pallborð:
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði
Veslemøy Hedvig Østrem, ritstjóri Altinget.no
Orri Páll Jóhannsson, , þingmaður og meðlimur í Norðurlandaráði
Pär Ahlberger, sendiherra Svíþjóðar
Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins

Fundarstjóri:
Pia Hansson, Forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands

Skipuleggjendur: Norrænt samstarf og Norræna félagið

Aðgengi að Elissa (salur) er gott. Aðgengileg og kynhlutlaus salerni eru á sömu hæð.