Riff – Börn og ungmenni 9 +


13:15´14:50

Lokaður viðburður

TEOFRASTUS

Saga frelsis og samúðar í Sovétríkjunum á áttunda áratugnum, séð í gegnum augu kattar og sögð af eiganda hans. Teofrastus er heimilislaus köttur sem boðið er heimili af fjölskyldu á sveitabæ. Hið nýtilkomna hamingjuríka líf er þó skammlíft þegar farið er með Teofrastus inn í stórborgina og hann týnist á götum úti. Mun hann finna leiðina til baka að hinu hamingjuríka lífi?

Estonia / 2019 / 15 min / Short Animation / Family
Director: Sergei Kibus

EN ROUTE
Á leiðinni

Þegar hin 9 ára gamla Inay og litli bróðir hennar þurfa að fara með föður sínum í sérstakt ferðalag í gegnum borgina, ákveður hún að gera hvað sem er til að tefja ferðina. Hún veit að ef þau koma seint á áfangastað fær hún fullt af sætindum.

Netherlands / 2019 / 10 min / Short Fiction
Director: Marit Weerheijm
Writer: Marit Weerheijm
Producers: Loes Komen, Eva Verweij

ISLAND LIVING

Í afskekktu þorpi á Austfjörðum býr hinn 12 ára gamli Bragi. Hann er orðinn þreyttur á einsleitu lífinu í bænum og langar að gera eitthvað nýtt og skapandi. Hann ákveður ásamt nýjum vini að skrá sig í hæfileikakeppni í þorpinu, í þeirri von að hrista upp í leiðinlegum skyldum hversdagsins.

Viktor Sigurjónsson ICE 2020 / 30 min
Iceland / United Kingdom / Denmark/ 2020 / 30 min / Short fiction / Drama
Director: Viktor Sigurjónsson

Producers: Atli Óskar Fjalarsson & Viktor Sigurjónsson
World Premiere / Heimsfrumsýning

 

KIMYA

Æskuheimili Josie hefur ávallt verið opið öllum sem þangað viljað koma og dyrnar aldrei verið læstar. Josie er hins vegar lítið gefið fyrir gestaganginn, og finnst hún jafnvel ekki vera hluti af fjölskyldunni. Þegar Josie fær loksins að vera ein heima í fyrsta sinn, er hún viss um að það verði besti dagur lífs hennar. Hún áttar sig þó fljótlega á því að heimilið er ekki samt þegar hún er þar ein.

Netherlands / 9 min / 2019 / Short Fiction
Director: Amira Duynhouwer

CITY NR. 13
BORG NR. 13 / STAD NR. 13

Misheppnuð för geimfars leiðir til þess að það getur brotlent á jörðinni á hverri stundu. Í litlum sænskum bæ virðist daglega lífið ganga sinn vanagang. Augnablik úr lífinu í borginni eru samofin heimspekilegum pælingum ellefu ára gamla Omars.

Sweden / 8 min / 2020 / Short Fiction
Director: Salad Hilowle
Writers: Sagal Farah, Salad Hilowle
Producers: Salad Hilowle, Henrik Pekkari
European Premiere / Evrópufrumsýning

LOLO

Hinn 11 ára gamli Lolo og bestu vinir hans hefja vegferð sína að því að skilgreina sjálfa sig og kynhneigð sína. Leandro Goddinho er brasilískur kvikmyndagerðarmaður sem hefur helgað sig hinsegin málefnum.

2019 / 14 min / Brazil and Germany / Short Fiction
Directors: Leandro Goddinho and Paulo Menezes

OCTOPUS
KOLKRABBI / AHTAPOT

Kolkrabbi er stuttmynd sem fjallar um átta og níu ára bestu vinina Ece og Efe og fylgir þeim á heitum og letilegum sumardegi við Eyjahafið. Ece og Efe hitta fyrir fjölmarga fullorðna sem ráðskast með þá en að lokum fá þeir nóg og ákveða að nú verði þeir að sanna sig. En þeir gera sér ekki grein fyrir því hversu dýrkeypt það muni vera.

Turkey / 2019 / 12 min / Short Fiction
Director: Engin Erden
Writer:Engin Erden
Producers: Engin Erden, Mehmet Seçen
Nordic Premiere / Norðurlandafrumsýning