Höfundakvöld með CARSTEN JENSEN – STREYMI


19:30

Höfundakvöld með CARSTEN JENSEN

Frá haustinu 2015 hefur Norræna húsið staðið mánaðarlega fyrir höfundakvöldum með spennandi norrænum höfundum. Að þessu sinni er gestur höfundakvöldsins rithöfundurinn, blaðamaðurinn og samfélagsrýnirinn Carsten Jensen. Viðburðurinn byrjar kl. 19:30 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Umræður fara fram á skandinavísku. Aðgangur er ókeypis.
Streymi

CARSTEN JENSEN (b. 1952) er danskur rithöfundur, blaðamaður og samfélagsrýnir. Hann er með gráðu í bókmenntafræði frá Kaupmannahafnarháskóla og kemur oft fyrir í dálkum stærstu dönsku dagblaðanna, með beittum samfélagsádeilum sínum, ritgerðum og fréttaaukum. Hann er einnig þekktur fyrir ferðaskýrslur sínar, ekki síst ferðasöguna Jeg har set verden begynde (1996), sem veitti honum verðlaun danskra bóksala, Boghandlernes Gyldne Laurbær.

Frægasta skáldsaga Carstens Jensen er verkið Vi, de druknede, sem var gefin út árið 2006. Hún er storbrotin skáldsöguannáll sem gerist í heimabæ Jensen Marstal í gegnum árin 1848-1945 þegar töluverður hluti danskra kaupskipa átti heima í Marstal. Síðasta bók hans Den første sten frá árinu 2015 er saga um hvaða áhrif stríð hefur á manneskju sem þarf stöðugt að óttast um líf sitt, um vináttu, svik og hörmungar. Carsten Jensen hefur meðal annars fengið Olof Palme verðlaunin (2009) og Søren Gyldendal verðlaunin (2012).

AALTO Bistro

AALTO Bistro er opið fyrir matargesti fram að höfundakvöldi, sem hefst kl. 19:30. Síðan selur AALTO Bistro léttar veitingar í hléi.

Borðapantanir