Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?
09:00
Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland? Miðvikudaginn 24. apríl 2019, kl. 9:00 – 18:30 í Norræna húsinu
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Norðurlönd í fókus og utanríkisráðuneytið í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála standa nú í þriðja sinni fyrir ráðstefnu síðasta vetrardag, miðvikudaginn 24. apríl í Norræna húsinu. Tilgangur ráðstefnunnar er að leiða saman sérfræðinga og fræðimenn, og ekki síst alla þá sem áhuga hafa á alþjóðamálum á Íslandi, til opinnar umræðu um helstu áskoranir og tækifæri Íslands í utanríkismálum. Ráðstefnan samanstendur af nokkrum málstofum þar sem framsögumenn flytja áhugaverð erindi og í kjölfarið fara fram líflegar pallborðsumræður með valinkunnum gestum.
Skráning hér á rástefnuna og í hádegismatinn.
Dagskrá:
Ráðstefnustjóri: Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
9:00 – 9:20 Setning ráðstefnu
Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda við Háskóla Íslands
9:10 – 9:20 Opnunarávarp
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
9:20 – 10:20 Áskoranir framtíðar: Ungt fólk til áhrifa
Skjáskot: Bergur Ebbi, rithöfundur
The Power of Social Media: No woman is free until all women are free: Najmo Cumar Fiyasko, nemi í FÁ og YouTube áhrifavaldur
Umræðustjórn: Ragnar Þorvarðarson, sérfræðingur í utanríkisráðuneytinu
Pallborð: Elísabet Brynjarsdóttir, forseti Stúdentaráðs, Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Jökull Ingi Þorvaldsson, fulltrúi úr ritstjórn skuggaskýrslu barna til barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna, og Pétur Halldórsson, formaður Samtaka ungra umhverfissinna.
10:20 – 10:30 kaffi
10:30 – 11:30 Ímynd Norðurlanda: Friður og jafnrétti?
Jafnrétti sem útflutningsvara: Silja Bára Ómarsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðideild
Ísland og Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna: Davíð Logi Sigurðsson, deildarstjóri í utanríkisráðuneyti
Umræðustjórn: Sigurður Ólafsson, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins
Pallborð: Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, Irma Erlingsdóttir, forstöðumaður RIKK og UNU-GEST, Magnea Marínósdóttir, sérfræðingur á skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu og Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri-grænna og fulltrúi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs
11:30 – 12:00 Léttur hádegisverður
12:00 – 12:45 Framtíðin: Veðjað á voldug ríki eða alþjóðastofnanir?
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis
Umræður og spurningar úr sal að loknum erindum
12:45 – 13:45 Ísland, Bandaríkin og NATO á 21. Öld
Byggt á traustum grunni og reynslu: Hjálmar W. Hannesson, fyrrverandi sendiherra
NATO á nýrri öld: Tækifæri og áskoranir fyrir Ísland: Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá NATO
Umræðustjórn: Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins
Pallborð: Bjarni Bragi Kjartansson, alþjóðastjórnmálafræðingur, Björn Malmquist, fréttamaður á RÚV, Borgar Þór Einarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra og Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
13:45 – 14:45 Þátttaka í samvinnu Evrópuríkja og framtíðarsamskiptin við Bretland
Sjálfbært efnahagssamband?: Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra
Að horfa fram á veginn: Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra
Umræðustjórn: Eva Heiða Önnudóttir, formaður Félags stjórnmálafræðinga
Pallborð: Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Gunnar Dofri Ólafsson, lögfræðingur Viðskiptaráðs, Jóhanna Jónsdóttir, sérfræðingur á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
14:45 – 15:00 kaffi
15:00 – 16:00 Hernaðarumsvif á Norðurslóðum
Geopólitík og þjóðaréttur á Norðurskautinu: Bjarni Már Magnússon, dósent HR
Samstarf í öryggismálum á norðurslóðum: Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins
Umræðustjórn: Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands
Pallborð: Bryndís Kjartansdóttir, sendiherra Íslands í málefnum norðurslóða, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri-grænna, Sóley Kaldal, sérfræðingur í áhættugreiningum og norðurslóðamálum hjá Landhelgisgæslu Íslands
16:00 – 17:00 Litið til austurs: Samskipti Íslands og Asíu
Áhrif Íslands í Asíu: Dagfinnur Sveinbjörnsson, forstjóri Arctic Circle
Kínversk-íslensk samskipti: Frá brenniboltum til hitaveitna: Hafliði Sævarsson, viðskiptafræðingur og verkefnastjóri á skrifstofu alþjóðasamskipta Háskóla Íslands
Umræðustjórn: Sjöfn Vilhelmsdóttir, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands
Pallborð: Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, meistaranemi í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands, Kristín Ingvarsdóttir, dagskrárstjóri í Norræna húsinu og sérfræðingur í japanskri samtímasögu, Ragnar Þorvarðarson, viðskipta- og Asíufræðingur, sérfræðingur í utanríkisráðuneytinu.
17:00 – 17:15 Samantekt: Ísland í samfélagi þjóðanna
Guðmundur Hálfdanarson, forseti Hugvísindasviðs og stjórnarformaður Alþjóðamálastofnunar
17:15 – 18:30 Móttaka í anddyri Norræna hússins
Jakob Birgisson, eða Meistari Jakob, slær á létta strengi um alþjóðamál í lok ráðstefnudags