ADHD TÓNLEIKARÖÐ NORRÆNA HÚSSINS


21:00

Miðasala

 

Félagarnir í hljómsveitinni ADHD eru afar spenntir yfir því taka þátt í Sumartónleikaröð Norræna hússins enda hefur sveitin ekki leikið í Norræna Húsinu í háa herrans tíð. Á efnisskrá tónleikana verða og eldri lög í alls kyns útgáfum.  ADHD gaf út nýja hljómplötu á vormánuðum og fékk þessi nýja plata nafnið ADHD7. Hljómplatan inniheldur 9 glæný lög, öll eftir hljómsveitarmeðlimi; sum þeirra eru grípandi og hress, önnur meira inn á við og rólegri, en eru þó (mögulega) rökrétt framhald af fyrri verkum sveitarinnar. Hver veit? 

Spotify

Tónleikaröð Norræna hússins fer fram í þriðja skipti í sumar með fjölbreyttri dagskrá og áhugaverðum tónlistarmönnum. Þetta ár kynnum við  fjögur atriði frá hinum Norðurlöndunum ásamt sex íslenskum atriðum. Tónleikaröðin inniheldur eitthvað fyrir alla; þjóðlagatónlist, djass, klassík og popp.

Tónleikaröð Norræna hússins sumarið 2019

12. júní Ragnheiður Gröndal
19. júní Tómas R. Einarsson
26. júní Teitur (FO)
3. júlí Geir Draugsvoll & Mette Rasmussen (NO)
10. júlí GYDA
17. júlí Mattias Nilsson (SE)
24. júlí  Svavar Knútur
31. júlí Mirja Klippel (FI) & Alex Jonsson (DK)
7. ágúst Einar Scheving
14. ágúst ADHD

Veitingastaðurinn AALTO Bistro í Norræna húsinu hefur opið fyrir matargesti fyrir tónleikana og býður upp á ljúffengan kvöldverð, smárétti og aðrar veitingar úr fyrsta flokks hráefni. Panta borð

Viðburðadagatal Norræna hússins