Á milli : Heima – málstofa og sýning: Lærðu um styrki


17:00 - 20:00
Salur
Aðgangur ókeypis

Á milli : Heima er málstofa og sýning á listræna samstarfsverkefninu Moving Classics Sonic Flux.

Verkefnið hlaut styrk frá Creative Europe 2019 og svo frekari styrki frá Nordic Culture Point og Nordisk Kulturfond 2020.
Ásamt samstarfsaðilum frá Íslandi, Bretlandi, Kýpur og Noregi höfum við síðustu ár unnið að sex listrænum verkefnum þar sem viðfangsefnið eru hugtökin flótti, heima og tilheyra.
Á þessum viðburði munum við sýna 4 stuttmyndir og bjóðum áhorfendum að njóta, sem og ræða við listamennina sem að þeim koma, hvort sem það er um listræna nálgun eða reynslu þeirra af evrópkum og norrænum samstarfsverkefnum.
Einnig gefst tækifæri að læra frekar af styrktarferli verkefnisins og aðilar frá Creative Europe og Nordisk Kulturfond verða við til að svara spurningum.
Dagskrá:
Steinrunninn (Petrified) eftir Chris Paul Daniels (UK) og Anton Kaldal (IS)
A Green Line eftir Maria Anastassiou (CY)og Brice Catherin (FR) – Undirleikur frá klarinetleikaranum George Georgou frá Kýpur
No Place Like Home by Jez Dolan (UK) and Michael Betteridge (UK)
Liminality eftir Pálínu Jónsdóttur, Ewa Marcinek, Halldór Smárason og Martyna Daniel
Boðið verður uppá léttar veitingar að viðburði loknum.
Ókeypis aðgangur
Viðburður fer fram á ensku