Híbýlaauður – samtal um húsnæðismál


13-15

Samtal um húsnæðismál, spunnið út frá arkitektónískum og hagrænum rannsóknum sem kynntar verða í samhengi við húsnæðisuppbyggingu á Íslandi.
Í samtalinu, sem verður streymt frá Norræna húsinu, er áherslunni beint að íbúanum og gæðum í hönnun og skipulagi, því að skapa híbýlaauð fyrir þá sem búa ekki síður en þá sem byggja.
FYRIR HVERN ER VERIÐ AÐ BYGGJA?
Magn, framboð og fermetrar eru fyrirferðarmiklir þættir í umræðu um húsnæðismál. Spurt er hversu mikið á að byggja en ekki hvernig á að byggja. Fátt er hins vegar mikilvægara fyrir líf okkar og lífsgæði en það hvernig við búum og hvernig húsnæði og umhverfið í kringum okkur er skipulagt og hannað. Þá kalla lýðheilsu- og umhverfisáskoranir samtímans sem aldrei fyrr á gæði hönnunar við íbúðauppbyggingu.
13.00 LÚXUS FYRIR ALLA?
ANNA MARÍA BOGADÓTTIR, arkitekt og menningarfræðingur
innleiðir samtalið um listina að búa og listina að byggja:
Hvar er pláss til að anda?
13.15 HVER GRÆÐIR Á ÞESSU?
ÁSGEIR BRYNJAR TORFASON, doktor í fjármálum
rýnir í hagræna og hagsögulega þætti íbúðauppbyggingar í samtali við Unu Jónsdóttur hagfræðing hjá Landsbankanum:
Er dýrt að byggja ódýrt?
14.40 GLÆTAN?!
HREFNA BJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR & HÓLMFRÍÐUR ÓSMANN JÓNSDÓTTIR, arkitektar
kynna rannsóknir sínar á dagsbirtu í fjölbýlishúsum ásamt ÁSTU LOGADÓTTUR doktor í rafmagnsverkfræði:
Er gluggi ekki bara gluggi?
14.05 HVAR Á PÍANÓIÐ AÐ VERA?
HILDUR GUNNARSDÓTTIR, ARKITEKT
rýnir í rýmismótun, stærð og gæði almennra íbúða í samtali við Björn Arnar Magnússon framkvæmdastjóra Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands og Pál Gunnlaugsson arkitekt og meðeiganda ASK arkitekta:
Hvenær runnu leiksvæðið og bílastæðið saman í eitt?
14.30 ER EINHVER FRAMTÍÐ Í ÞESSU?
Fulltrúar úr framlínu húsnæðisuppbyggingar, þeirra sem búa og byggja, leggja orð í belg:
Á að splæsa í gæði fyrir alla?
Samtalið er hluti stærra viðburða- og útgáfuverkefnis á vegum ÚRBANISTAN og arkitektanna Önnu Maríu Bogadóttur, Hildar Gunnarsdóttur, Hólmfríðar Ósmann Jónsdóttur og Hrefnu Bjargar Þorsteinsdóttir, Ásgeirs Brynjars Torfasonar, doktors í fjármálum og Snæfríðar Þorsteins, hönnuðar. Verkefnið hefur hlotið styrk úr Hönnunarsjóði og Miðstöð íslenskra bókmennta.
Viðburðurinn er á dagskrá Hönnunarmars og í samstarfi við Norræna húsið.