Að þýða og verða þýddur

Bilde av forfatter Hallgrimur Helgason, forsiden av hans bok: 60 kilo solskinn, og oversetter Maren Barlien Guntvedt på en rød bakgrunn

Alveg síðan Sextíu kíló af sólskini eftir Hallgrím Helgason var gefin út í Noregi hefur hún vermað efstu sætin á metsölulistum þar í landi. Síldin hefur vissulega verið þýðingarmikil bæði í Noregi og á Íslandi, en þessi velgengni sýnir einnig að þýðandinn, Maren Barlien Guntvedt, hefur tekist það meistarastykki að snara texta Hallgríms yfir á norsku. Það er ekki lítið mál að þýða sagnagleðina, litríkar persónur og hið örstutta bil á milli kímni og örvæntingar sem einkennir bókina. Í samstarfi við norska sendiráðið býður Norræna húsið í „litterært sildelag“ þriðjudaginn 19. maí kl. 17:00. Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason og þýðandinn Maren Barlien Guntvedt ætla að ræða hvernig það er að þýða og verða þýddur. Hvernig tók þýðandinn á þessari miklu áskorun? Unnu þau mikið saman á meðan á þýðingarferlinu stóð? Hvernig finnst rithöfundinum að verða þýddur? Umræðustjóri er Silje Beite Løken hjá Norræna húsinu. Sendiráðið býður upp á bjór og síld og við lofum bryggjustemningu í Vatnsmýrinni. Frítt inn og allir velkomnir. Samtalið og ræða sendiherrans fara fram á norsku Aðgengisupplýsingar – smellið hér. 

Barnamenningarhátíð: Málað með jökulleir – Fjölskyldusmiðja!

Gestir eru velkomnir í vinnusmiðju á barnamenningarhátíð með myndlistarkonunni Írisi Maríu Leifsdóttur þar sem hægt er að prófa að mála með jökulleir. Íris María býður upp á leir frá Svínafellsjökli, Breiðamerkurjökli og Sólheimajökli sem málað er með á vatnslitapappír. Einnig verða notaðir vatnslitir. Mælum með fyrir gesti að skoða sýninguna Gárur: Umbreytingar á norðurslóðum fyrir […]

Barnamenningarhátíð í Norræna húsinu!

Watercolorpainting, colorful dots and red lineas, blue area reminding of a glacier.

Við höldum uppá Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2026, dagana 21 – 26 apríl. Í boði verður meðal annars sýning á verkum grunnskólabarna, fjölskylduleiðsögn og smiðjur af ýmsum toga. Ókeypis er inná sýningar og allar smiðjur. Málað með jökulleir, smiðja fyrir alla fjölskylduna! 25.04 Myndlistarkonan Íris María Leifsdóttir verður með smiðju þar sem hægt er að prófa […]

Velkomin í fjölskylduvæna leiðsögn um sýninguna Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum

Velkomin í fjölskylduvæna leiðsögn um sýninguna Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum, um er að ræða leiðsögn sem er sérstaklega aðlöguð að börnum. Taktu þátt í rólegri, klukkustundarlangri göngu um sýninguna með Ásthildi Jónsdóttur sýningarstjóra; leiðsögnin fer fram á íslensku. Við skoðum saman listaverk og vísindarannsóknir um norðurslóðir, snjó, ís og jökla og þær breytingar sem eiga sér […]

Innblásin af norðri: Sýning á verkum barna

Velkomin á sýningu á verkum barna úr grunnskólum Reykjavíkur. Á sýningunni Innblásin af norðri má sjá textílverk, klippi- og vídeóverk og málverk nemenda úr Landakotsskóla, Melaskóla og Hagaskóla. Verkin eru öll innblásin af sýningunni Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum sem nú stendur yfir í Hvelfingu. Verkin eru unnin undir handleiðslu listamanna auk list- og verkgreinakennurum skólanna.  Sýningin […]

Samskipti áferða -HönnunarMars 2026

Samskipti áferða er sería af fimm vélprjónuðum veggteppum. Hvert teppi er prjónað með þremur til fjórum litum úr bómullargarni og byggir á prjónaðferðum sem skapa áferð, lagskiptingu og dýpt. Verkið kannar þannig samspil prjónaðferða og lita í gegnum mótíf hreyfanlegra forma og línulegra strúktúra og hvernig litir geta dofnað, blandast eða breyst eftir sjónarhorni og […]

Manstu eftir mér? – HönnunarMars 2026

Fatahönnunarfélag Íslands stendur fyrir sýningu í Hvelfingu Norræna hússins þar sem gestir fá að skyggnast inn í arkív í vinnslu, rifja upp tískusveiflur, móment og minningar, hitta gleymda vini og taka þátt í samtali, upprifjun og varðveislu. Á sýningunni verða ljósmyndir, myndbönd, úrklippur og flíkur frá árunum 2000-2015. Aðgengi í Elissu sal er gott. Aðgengileg […]

Suskin – Pop-up HönnunarMars 2026

Suskin kynnir tískugjörning þar sem dans og hönnun mætast. Tveir dansarar kanna samband líkamans, hlutar og tíma, þar sem leðurtöskur frá Suskin eru í aðalhlutverki. Í gegnum dans ferðast verkið um ólík skeið lífsins, frá fæðingu til elli,  þar sem töskurnar eru stöðugir fylgifiskar, bera með sér minningar, mótast af notkun og þróast með líkamanum. […]

Vetur/Sumar, Vor/Haust – HönnunarMars 2026

Sýnishorn af nýrri línu MAGNEA fyrir vor&sumar 2027. Lína sem byggir á hugmyndafræði merkisins um að gera nýja og ferska hluti í prjóni. Titillinn er leikur að íslensku orðatiltæki sem hefur verið hönnuðinum hugfangið í ferlinu við að hanna prjón inn í norrænan veruleika þar sem árstíðirnar eiga það til að renna inn í hvor aðra. MAGNEA […]

Extinction Event – HönnunarMars 2026

Fyrir HönnunarMars 2026 kynnir fatahönnuðurinn Theo Ike viðburðinn: Extinction Event, sérstaka innsýn í tengsl forsögunnar og framtíðarinnar í gegnum sjónarhorn fatahönnunar. Viðburðurinn fer fram í Norræna húsinu, umkringdu votlendi þar sem líf kom fyrst fram fyrir um það bil 400 milljónum ára. Homo sapiens hafa verið til í minna en 0,007% af tilvist jarðar, nægilega […]

Suskin – Performance HönnunarMars 2026

Suskin kynnir tískugjörning þar sem dans og hönnun mætast. Tveir dansarar kanna samband líkamans, hlutar og tíma, þar sem leðurtöskur frá Suskin eru í aðalhlutverki. Í gegnum dans ferðast verkið um ólík skeið lífsins, frá fæðingu til elli,  þar sem töskurnar eru stöðugir fylgifiskar, bera með sér minningar, mótast af notkun og þróast með líkamanum. […]

Þræðir Tenginga

Blue tiled roof of The Nordic House split in many images connected with red lines

Fata- og textílhönnun  tekur yfir Norræna húsið á HönnunarMars og umbreytir því í lifandi vettvang fyrir tísku og samtal. Þema HönnunarMars 2026 er Tengingar. „Hvernig tengjumst við í gegnum tísku, hefðir, siði og handverk?“ Norræna húsið mun hýsa vönduð sýningarrými þar sem bæði upprennandi og rótgrónir hönnuðir sýna verk sín. Dagskráin spannar einnig pallborðsumræður, kynningar, […]

HönnunarMars vinnustofu með Juha Vehmaanperä!

Taktu þátt í vinnustofu prjónalistamannsins Juha Vehmaanperä í Handverksklúbbnum í Norræna húsinu laugardaginn 9. maí kl. 11-14. Í vinnustofunni kennir Juha sérstakar handprjónsaðferðir eins og bylgjumynstur og tuck-prjón. BYOKE = Komdu með eigin prjónabúnað Þú þarft að koma með prjóna í þeirri stærð sem þú kýst. Þér er velkomið að prófa mismunandi gerðir af prjónum […]

ALPHA Málþing: Menningararfur, handverk og tískuheimur

Hvernig vinna upprennandi fatahönnuðir með menningararf? Hvaða hlutverki gegna handverk og klæðnaður í því að tengja saman fortíð og nútíð? Norræna stofnunin ALPHA og Norræna húsið standa fyrir hálfs dags málþingi sem fjallar um menningararf í samhengi við samtímatísku. Með kynningum og samtali veitir málþingið nýja sýn á merkingu og notkun menningararfs og handverks í […]

Fjölskyldu miðvikudagur með Hafdís Guðnadóttir, ljósmóðir

Hafdís Guðnadóttir ljósmóðir og faggildur svefnráðgjafi barna, verður með stutt fræðsluerindi á barnabókasafni Norræna hússins. Hafdís býður upp á fjölbreytta fræðslu og netnámskeið á síðunni sofabordaelska.is. Í erindinu verður fjallað um svefn barna og hvernig þú getur stutt barnið þitt í átt að góðum svefni á einfaldan og virðingarríkan hátt. Farið verður í gegnum fjögur […]

Barnamenningarhátíð í Norræna húsinu!

Velkomin á sýningu á verkum barna úr grunnskólum Reykjavíkur. Á sýningunni Innblásin af norðri verða sýnd textílverk, klippi- og vídeóverk og málverk nemenda úr Landakotsskóla, Melaskóla og Hagaskóla. Verkin eru öll innblásin af sýningunni Gárur: Umbreytingar á norðurslóðum sem nú stendur yfir í Norræna hússinu. Verkin eru unnin undir handleiðslu listamanna auk list- og verkgreinakennurum skólanna.  Sýningin verður […]

Hyggestund – Skúlptúrískur órói!

Velkomin í föndurstund fyrir fjölskyldur af öllum gerðum þar sem gestir kynnast náttúrulegum og ónáttúrulegum efnum sem passa óvænt saman og mynda óróa. Námskeiðið er innblásið af sýningunni Gárur: Umbreytingar á norðurslóðum sem er staðsett í sýningarsalnum Hvelfingu og teygir sig inn á  barnabókasafn. Þemað verður norðurslóðir og dýrin sem þar búa. Allt efni og útskýringar verða […]

Ritlistarnámskeið fyrir 18-30 ára í Norræna Húsinu

Lots of books lying in a pile

Norræna húsið býður upp á spennandi ritlistarnámskeið fyrir 18–30 ára undir leiðsögn Sunnu Dísar Másdóttur. Námskeiðið fer fram 13. apríl kl. 17:00–20:00.  Áhersla verður lögð á ljóðlist og er þátttaka ókeypis. Viðburðurinn er á íslensku. Norræna Húsið býður upprennandi höfundum pláss á ritlistarnámskeiðinu hennar Sunnu Dísar. Kennt er á íslensku og námskeiðið verður haldið í […]

Málþing: Artivismi sem afl til umbreytinga

Poster that reads: Artivism as a catalyst for wellbeing economies.

Verið velkomin á málþingið Artivism as a Catalyst for Wellbeing Economies. 15 apríl 2026 18:00-20:00, léttar veitingar frá 17:30 Staðsetning: Elissa, salur Norræna hússins Tungumál viðburðar: Enska Á málþinginu verður fjallað um hvernig artivismi getur verið öflugur drifkraftur í átt að hagkerfum sem byggja á vellíðan, réttlæti og sjálfbærni. Alþjóðlegir og íslenskir listamenn, aktívistar og […]

Tilkynning vegna veðurs

Vegna óveðurs og í samræmi við ráðleggingar frá Almannavörnum verður Norræna húsið tímabundið lokað á meðan verstu veðurskilyrðin ganga yfir. UPPFÆRSLA  Viðburðir kl 15:00 og 16:30 verða á dagskrá (og Plantan er opin!)    

Þannig týnist tíminn

A fjord in the backgorund with two edited pictures added on top, one of a girl thinkning and one of a man in front of a computer

Arfleifð og framtíð menningarminja í Færeyjum, Grænlandi og Íslandi Málstofa Fundarstjóri: Vera Illugadóttir   Kl. 16:30 Menningarminjar sem fornleifar og sagnfræði Bjarni Ólafsson sagnfræðingur Jón Gnarr þingmaður Orri Vésteinsson fornleifafræðingur Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur   Kl. 17:10 Kaffihlé   Kl. 17:20 Menningarminjar og loftslagsbreytingar Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingmaður Guðmundur Stefán Sigurðarson fornleifafræðingur Guðrún Alda Gísladóttir […]

Stofnun L-G Nordström gefur Norræna húsinu skúlptúr

L-G Nordström sculpture and abstract artpiece in black and white hanging on the wall behind the sculpture. Also a close up of the sculpture

Norræna húsið hefur þegið rausnarlega gjöf frá L‑G Nordström stofnuninni, skúlptúr eftir listamanninn Lars-Gunnar Nordström. Gjöfin styrkir hlutverk Norræna hússins í að efla norræna myndlist og styðja við listsköpun og samstarf á Norðurlöndum. Um listamanninn, Lars‑Gunnar Nordström Verk finnska listamannsins Lars‑Gunnar Nordström, oft nefndur Nubben, spanna málverk, skúlptúra, grafík og listaverk í almannarými. Ferill hans […]

Stockfish 29. Mars: Barnadagskrá

Animation of a seashell-spiral in purple, blue, pink, and light blue on a purple background

Við erum spennt að halda áfram samstarfi okkar við Stockfish kvikmyndahátíðina! Í ár mun Norræna húsið hýsa tveggja daga dagskrá sem inniheldur Stockfish Industry Days með áherslu á Framtíð kvikmyndalandslags Norður-Atlantshafsins, laugardaginn 28. mars. Á sunnudaginn 29. mars verður svo frábær og lifandi barnadagskrá. Lesið meira um alla dagskrána á heimasíðu Stockfish með því að […]

Stockfish 28. mars: Bransadagar / Industry Days

Animation of a seashell-spiral in purple, blue, pink, and light blue on a purple background

Við erum spennt að halda áfram samstarfi okkar við Stockfish kvikmyndahátíðina! Í ár mun Norræna húsið hýsa tveggja daga dagskrá sem inniheldur Stockfish Industry Days með áherslu á Framtíð kvikmyndalandslags Norður-Atlantshafsins laugardaginn 28. mars. Dagskránni verður svo haldið áfram sunnudaginn 29. mars með frábærri barnadagskrá Lesið meira um alla dagskrána á heimasíðu Stockfish með því […]

Leshringur Norræna hússins 2026 

Leshringur Norræna hússins 2026  Við lesum bækur á skandinavísku, hittumst og ræðum verkin saman. Bækurnar sem við einblínum á eru verk sem hafa annaðhvort hlotið eða verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.  Þriðji leshringsfundur verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl kl. 18:00. Við lesum Hunter i Huskvarna eftir Söru Stridsberg. Stridsberg er sænskur höfundur, þýðandi og leikskáld. […]

Samstöðufundur með Grænlandi

A boy holding a Greenlandic flag standing on snow with blue skies in the background.

Velkomin á samstöðufund með Grænlandi í boði Kalak, vinafélags Grænlands og Íslands.  Fram koma Karsten Peter Jensen sendifulltrúi Grænlands á Íslandi, Hanna í Horni, aðalræðismaður Færeyja á Íslandi, grænlensk tónlist og kynning á starfi Kalak, vinafélags Grænlands og Íslands. Í boði verður fyrir alla að skrá sig í Kalak. Jafnframt verður kynning á grænlenskri menningu […]

Norræna húsið í Reykjavík gengur til liðs við FORCE

A picture in the bacground of a meeting hall, in red the letters: FORCE, Voices In Public Art: Mapping Freedom Of Speech And Expression In The Nordic Region

Norræna húsið í Reykjavík gengur til liðs við FORCE, norrænan samstarfsvettvang sem vinnur að því að efla listfrelsi og styðja við listamenn. Það er okkur ánægja að tilkynna að Norræna húsið er nú samstarfsaðili FORCE (Freedom, Open dialogue, Resilience, Collaboration, and Empowerment). FORCE er norrænt framtak, stofnað af Mesén, sem miðar að því að styrkja […]

Dagur Norðurlanda 2026: Framtíð lýðræðisins

A yellow background with blue text saying: The future of Democracy at the top, and along the left side of the picture it says: Nordic Day 2026. To the right there is a picture of somehone raising there hand. Under this picture there is pictures of all the Nordic flags.

Þriðjudaginn 24 mars, kl. 09.00-10.30. Húsið opnar kl. 08.30 – kaffi og léttur morgunverður verður í boði. ATH: Það er takmarkað pláss og þátttakendur verða að skrá sig á viðburðinn – smellið hér.  Einnig verður hægt að fylgjast með beinu streymi – smellið hér.  Lýðræði stendur á krossgötum. Upplýsingaóreiða, dalandi traust til stofnana, aukin skautun […]

Dagur Norðurlandanna – Hjólbörur í norðri!

Nemendum er boðið í töfrandi ferðalag um norrænu löndin á Degi Norðurlandanna! Hjólbörur í Norðri er lífleg norræn barnasýning og vinnustofa sem Lone Wernblad og Bergur Fonsdal Johannsen hafa skapað. Sýningin tekur börn með í ímyndað tónlistarfeðralag um Norðurlöndin – frá fjöllum og fjörðum til ísbjarna, sæhesta og hundasleða. Börnin taka virkan þátt í gegnum […]

Pikknikk – Tónlistarmenn athugið: Opið fyrir umsóknir!

Langar þig að koma fram í notalegu og lifandi umhverfi í sumar? Pikknikk-tónleikaröð Norræna hússins er orðin fastur liður í tónlistarlífi Reykjavíkur yfir sumarmánuðina. Tónleikarnir fara fram í gróðurhúsinu, með fallegu útsýni yfir Vatnsmýrina og fuglasöng fjölbreyttra íbúa friðlandsins í bakgrunni. Norræna húsið leitar nú að tónlistarfólki fyrir dagskrá sumarsins! Áherslan árið 2026 er á […]

Verið velkomin á leiðsögn um sýninguna Membrane

Sýningarstjórinn Thomas Pausz leiðir gesti um sýninguna. Leiðsögnin fram á ensku og tekur um það bil klukkutíma. Sýningin Membrane skoðar endurnýjun jarðvegs sem grundvallarferli sem gerir jörðina byggilega og lífi kleift að kvikna, dafna og endurnýja sig. Vísindalegar og pósthúmanískar nálganir líta í auknum mæli á jarðveg sem sjálfstýrðu, lifandi kerfi – kviku samlífskerfi fremur en […]

Fjölskyldu miðvikudagar

Á miðvikudagsmorgnum, eru í boði skynjunarleikföng fyrir yngstu gestina (0-2 ára). Morgnarnir eru hugsaðir fyrir foreldra í fæðingarorlofi og einnig verða í boði hinar vinsæluTónlistarstundir, ýmsir örfyrirlestrar, Ljóðakistan og fleira. Plantan Bistró er með sérstakt tilboð fyrir unga gesti þessa morgna og hægt er að taka með sér kaffi og með því, niður á barnabókasafn. […]

Fjölskyldu miðvikudagar

Á miðvikudagsmorgnum, eru í boði skynjunarleikföng fyrir yngstu gestina (0-2 ára). Morgnarnir eru hugsaðir fyrir foreldra í fæðingarorlofi og einnig verða í boði hinar vinsæluTónlistarstundir, ýmsir örfyrirlestrar, Ljóðakistan og fleira. Plantan Bistró er með sérstakt tilboð fyrir unga gesti þessa morgna og hægt er að taka með sér kaffi og með því, niður á barnabókasafn. […]

Fjölskyldu miðvikudagar

Á miðvikudagsmorgnum, eru í boði skynjunarleikföng fyrir yngstu gestina (0-2 ára). Morgnarnir eru hugsaðir fyrir foreldra í fæðingarorlofi og einnig verða í boði hinar vinsæluTónlistarstundir, ýmsir örfyrirlestrar, Ljóðakistan og fleira. Plantan Bistró er með sérstakt tilboð fyrir unga gesti þessa morgna og hægt er að taka með sér kaffi og með því, niður á barnabókasafn. […]

Fjölskyldu miðvikudagar

Á miðvikudagsmorgnum, eru í boði skynjunarleikföng fyrir yngstu gestina (0-2 ára). Morgnarnir eru hugsaðir fyrir foreldra í fæðingarorlofi og einnig verða í boði hinar vinsæluTónlistarstundir, ýmsir örfyrirlestrar, Ljóðakistan og fleira. Plantan Bistró er með sérstakt tilboð fyrir unga gesti þessa morgna og hægt er að taka með sér kaffi og með því, niður á barnabókasafn. […]

Fjölskyldu miðvikudagar

Á miðvikudagsmorgnum, eru í boði skynjunarleikföng fyrir yngstu gestina (0-2 ára). Morgnarnir eru hugsaðir fyrir foreldra í fæðingarorlofi og einnig verða í boði hinar vinsæluTónlistarstundir, ýmsir örfyrirlestrar, Ljóðakistan og fleira. Plantan Bistró er með sérstakt tilboð fyrir unga gesti þessa morgna og hægt er að taka með sér kaffi og með því, niður á barnabókasafn. […]

Fjölskyldu miðvikudagar

Á miðvikudagsmorgnum, eru í boði skynjunarleikföng fyrir yngstu gestina (0-2 ára). Morgnarnir eru hugsaðir fyrir foreldra í fæðingarorlofi og einnig verða í boði hinar vinsæluTónlistarstundir, ýmsir örfyrirlestrar, Ljóðakistan og fleira. Plantan Bistró er með sérstakt tilboð fyrir unga gesti þessa morgna og hægt er að taka með sér kaffi og með því, niður á barnabókasafn. […]

Fjölskyldu miðvikudagar

Á miðvikudagsmorgnum, eru í boði skynjunarleikföng fyrir yngstu gestina (0-2 ára). Morgnarnir eru hugsaðir fyrir foreldra í fæðingarorlofi og einnig verða í boði hinar vinsæluTónlistarstundir, ýmsir örfyrirlestrar, Ljóðakistan og fleira. Plantan Bistró er með sérstakt tilboð fyrir unga gesti þessa morgna og hægt er að taka með sér kaffi og með því, niður á barnabókasafn. […]

Miðvikudagsmorgnar – Tónlistarstund með Natalie!

Fjölskyldur með börn á aldrinum 0-3 ára er boðið á gagnvirka tónlistarstund sem leidd er af fiðluleikaranum og tónlistarkennaranum Natalia Duarte Jeremias. Viðburðurinn er um 30 – 40 mínútur að lengd, aðgengi er ókeypis og allir velkomnir! Athugið að takmarkað pláss er á viðburðinn svo skráning er nauðsynleg með því að senda tölvupóst: tonlistarstund@gmail.com. Natalia notar […]

Fjölskyldu miðvikudagar

Á miðvikudagsmorgnum, eru í boði skynjunarleikföng fyrir yngstu gestina (0-2 ára). Morgnarnir eru hugsaðir fyrir foreldra í fæðingarorlofi og einnig verða í boði hinar vinsæluTónlistarstundir, ýmsir örfyrirlestrar, Ljóðakistan og fleira. Plantan Bistró er með sérstakt tilboð fyrir unga gesti þessa morgna og hægt er að taka með sér kaffi og með því, niður á barnabókasafn. […]

Lestur barna og ungmenna

Í tengslum við tilnefninga til barna- og unglingabókmennta– verðlauna Norðurlandaráðs ætlum við að skoða verkefni sem efla yndislestur barna og unglinga. Fulltrúar norræna bókagleypisins ætla að kynna verkefninu og aðrir aðilar munu segja frá sínum reynslum og rannsóknaverkefnum. Hvað virkar? Salomon Hellman starfar sem bókasafnsfræðingur hjá Nordisk Kulturkontakt i Helsinki, Hann mun meðal annars segja […]

Tilnefningar til barnabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Velkomin á kynningu á tilnefningum til Barnabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026, sem fram fer hér í bókasafninu í Norræna húsinu. Íslensku höfundarnir sem tilnefndir eru í ár verða með okkur, og nefndin mun kynna verk þeirra. Boðið verður upp á léttan hádegisverð og tækifæri gefst til að spjalla við tilnefndu höfundana um verk þeirra. Viðburðurinn fer fram […]

Leiðsögn með sýningarstjóra

photograph of a glacier, taken from above, white and blue are dominant colours

Verið velkomin á leiðsögn um sýninguna Ripples: Shifting Realities in the Arctic / Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum.  Sýningarstjórinn Ásthildur Jónsdóttir leiðir gesti um sýninguna og fer leiðsögnin fram á ensku og tekur um það bil klukkutíma. Sýningin Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum sameinar listafólk og vísindafólk í rannsókn á djúpstæðum umhverfislegum, menningarlegum og skynrænum umbreytingum sem nú […]

Hyggestund

Búið til ykkar eigið jökuldýr! Við bjóðum alla fjölskylduna velkomna að koma og búa til jökuldýr. Þið hafið kannski heyrt um jökulmýsnar, kannski hafið þið jafnvel séð eina. Í þessari vinnustofu ætlum við að búa til dýr sem býr á jöklinum, kannski eru það mýsnar, kannski er það fljúgandi ísdreki, en það er allt undir […]

Velkomin á opnun sýningarinnar NU26: Borders and Boundaries

whote background. Black letters: Nu 26, Borders & Boundaries

Borders & Boundaries er ljósmyndasýning nemenda í starfsnámi á Norðurlöndum. NU‑sýningarnar hafa verið haldnar árlega síðan 2017 af Yrkesinstitutet Prakticum í Helsinki (www.prakticum.fi). Velkomin á opnun sýningarinnar þriðjudaginn 10. mars kl. 17:00–19:00. Markmið verkefnisins er að efla tengslanet og þróa miðla‑ og listmenntun á Norðurlöndum, auk þess að veita nemendum og skólum vettvang til að […]

NU26: Borders and Boundaries

White background. The letters: Nu26 - Boarders & Boundaries in black.

Borders & Boundaries er ljósmyndasýning nemenda í starfsnámi á Norðurlöndum. NU‑sýningarnar hafa verið haldnar árlega síðan 2017 af Yrkesinstitutet Prakticum í Helsinki (www.prakticum.fi). Skoða gólfplan sýningar – smellið hér Markmið verkefnisins er að efla tengslanet og þróa miðla‑ og listmenntun á Norðurlöndum, auk þess að veita nemendum og skólum vettvang til að hittast, fá sýnileika […]

Opið fyrir umsóknir í Kulturfonden Island-Finland

Hefur þú hugmynd að íslensk-finnsku samvinnuverkefni? Þú getur sótt um styrk frá Kulturfonden Island-Finland fyrir verkefni sem stuðlar að samvinnu milli landanna. Umsóknarfrestur rennur út þann 31. mars 2026. Lestu meira eða sæktu um hér: https://hanaholmen.fi/sv/KulturfondenIslandFinland Image from a performance by Linda Granfors & Aura Hakuri, at the Nordic House, summer 2024.