Hyggestund – Skúlptúrískur órói!
13:00-15:00
Velkomin í föndurstund fyrir fjölskyldur af öllum gerðum þar sem gestir kynnast náttúrulegum og ónáttúrulegum efnum sem passa óvænt saman og mynda óróa.
Námskeiðið er innblásið af sýningunni Gárur: Umbreytingar á norðurslóðum sem er staðsett í sýningarsalnum Hvelfingu og teygir sig inn á barnabókasafn.
Þemað verður norðurslóðir og dýrin sem þar búa. Allt efni og útskýringar verða á staðnum og starfsfólk bókasafnsafgreiðslu verður til staðar til að aðstoða gesti eða svara spurningum.

Gestir eru hvattir til að mæta snemma til að heimsækja sýninguna í Hvelfingu og fá innblástur frá sýningunni til að búa til óróann sinn.
Föndurstundin er ókeypis og ætluð öllum sem hafa áhuga, einnig er ókeypis inn á allar sýningar Norræna hússins.
Opnunartími og aðgengi: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf.