Fiskveiðistjórnun og jöfnuður – Færeyingar segja frá- Livestream
13:00 - 17:00
Fiskveiðistjórnun og jöfnuður – Færeyingar segja frá
Þrír færeyskir ráðherrar á fundi Vinstri-grænna 10. september. Fundurinn fer fram á skandinavísku tungumáli og er opinn öllum, ókeypis.
Livestream:
Þrír ráðherrar færeysku landstjórnarinnar, þau Högni Höydal, sjávarútvegsráðherra, Kristina Háfoss, fjármálaráðherra og Siríð Stenberg, innanríkis og velferðarráðherra, eru væntanleg til Íslands helgina 9 – 12 september í boði Vinstri-grænna.
Ráðherrarnir ætla að deila reynslu sinni úr ríkisstjórnarsamstarfi á opinni ráðstefnu í Norræna húsinu laugardaginn 10. september kl. Hún stendur frá klukkan 13.00 – 17.00 í stóra salnum. Að loknum kynningum ráðherranna verða pallborðsumræður með þátttöku þeirra þriggja og Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri-grænna. Jóhann Hauksson, fréttamaður, stýrir umræðunum.
Högni Höydal, formaður Þjóðveldisflokksins, er sjávarútvegsráðherra. Hann fer yfir hvernig uppboðsleið aflaheimilda var útfærð í því markmiði að skila auknum arði til almennings.
Kristina Háfoss, fjármálaráðherra færeysku landsstjórnarinnar, ræðir áhrif kerfisbreytinga sem gerðar hafa verið á efnahagsstjórn eyjanna.
Sirið Stenberg innanríkis- og velferðarráðherra, segir frá breytingum á velferðarkerfinu í átt til jöfnuðar og uppbyggingu á innviðum samfélagsins til að styrkja búsetu og jöfn tækifæri í Færeyjum.
Fundurinn í Norræna húsinu er öllum opinn. Færeysku ráðherrarnir veita fjölmiðlum viðtöl um stöðuna í færeysku samfélagi. Nánari upplýsingar veitir Björg Eva Erlendsdóttir í síma 8961222. beva@vg.is