Rithöfundakvöld í Norræna húsinu með Alex Schulman og Sunna Dís Másdóttir


19:00
Elissa Auditorium
Aðgangur ókeypis
Verið hjartanlega velkomin á rithöfundakvöld í Norræna húsinu.
Sænski rithöfundurinn Alex Schulman kemur til landsins og mun ræða nýjustu bók sína, Dag í júní, sem er nýkomin út hér á Íslandi. Sunna Dís Másdóttir þýddi bókina yfir á íslensku og mun stýra umræðum við höfundinn.
Alex Schulman hóf feril sinn sem bloggari og blaðamaður en er í dag einn vinsælasti rithöfundur Svíþjóðar, jafnframt því sem hann stýrir einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, Alex & Sigges podcast.
Sunna Dís Másdóttir er rithöfundur, þýðandi og ritstjóri.
Um bókina:
Vidar er kennari sem er kominn í öngstræti í lífinu. Hann hefur verið sendur í leyfi, sakaður um brot í starfi, og eyðir dögunum í einsemd. Þegar hann finnur gamalt símanúmer sem tilheyrði áður sumarhúsi fjölskyldunnar ákveður hann að hringja – og löngu látinn faðir hans svarar, dag einn í fortíðinni.
Dagur í júní er einstaklega mögnuð og grípandi saga um það sem mótar fólk í barnæsku – átakanleg frásögn um áföll og ástleysi. Sögur Alex Schulmans um börn og brotnar fjölskyldur hafa notið mikilla vinsælda víða um heim, en skáldsaga hans Eftirlifendurnirkom út á íslensku árið 2021.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.