Hyggestund Vatnslituð skordýr  


13:00-15:00
Aðgangur ókeypis

Í þessari fjölskyldusmiðju verður sóttur innblástur í smáan en mikilvægan heim skordýranna. Íris María myndlistarkona, leiðir listasmiðjuna. Byrjað er á því að teikna skordýr með tússlitum og síðan eru þau máluð með vatnslitum.

Skordýr gegna lykilhlutverki í vistkerfum okkar; þau fræva plöntur, hjálpa til við niðurbrot lífrænna efna og eru mikilvæg fæða fyrir fugla og önnur dýr. Þótt þau fari oft fram hjá okkur eru þau ómissandi hluti af náttúrunni.

Smiðjan er ókeypis og hentar fjölskyldum og þátttakendum á öllum aldri.

Íris María Leifsdóttir er myndlistarkona sem skapar veðruð verk með íslenskum jarðefnum og olíu. Hún hefur menntað sig í listkennslu, myndlist, félagsfræði og listmálun. Íris María hefur sýnt á söfnum og galleríum bæði hérlendis og á Grænlandi.

Aðgengi