ALPHA Málþing: Menningararfur, handverk og tískuheimur


9:30-13:00
Elissa Auditorium

Hvernig vinna upprennandi fatahönnuðir með menningararf? Hvaða hlutverki gegna handverk og klæðnaður í því að tengja saman fortíð og nútíð?

Norræna stofnunin ALPHA og Norræna húsið standa fyrir hálfs dags málþingi sem fjallar um menningararf í samhengi við samtímatísku. Með kynningum og samtali veitir málþingið nýja sýn á merkingu og notkun menningararfs og handverks í tísku. Deginum lýkur með lifandi vinnustofu, í umsjón kennara og nemenda úr fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands, þar sem allir fá að læra að prjóna.

Þátttakendur í prjónavinnustofunni læra prjónatækni sem er innblásin af íslenska „röggvafeldinum“, „rya weaving“ sem á sér að minnsta kosti þúsund ára sögu. Þátttakendur vinna á skapandi hátt með afgangsgarn og textíl og fara heim með fullkláraðan fylgihlut.

Þátttakendur fá einnig tækifæri til að kynnast íslenskri ull í sinni hreinustu mynd með því að prjóna beint úr óspunninni hráull.

Viðburðurinn er styrktur af Norræna menningarsjóðnum í gegnum ALPHA.

DAGSKRÁ:

9:30 – 9:40: Kveðja frá Norræna húsinu
9:40 – 10:00: Kynning á Norrænni tískumenningu, Ane Lynge-Jorlén framkvæmdastjóri ALPHA.
10:00 – 11:00: Menningararfur í Norrænni tísku. Samtal við fatahönnuði, Åsa Briet Brattaberg, Maibritt Marjunardóttir og Arnar Már Jónsson, samtalið leiðir Ane Lynge-Jorlén.
11:00 – 11:30: Kaffihlé
11:30 – 13:00: Prjónavinnustofa

Viðburðurinn fer fram á ensku.

Aðgengi í Elissu sal er gott. Aðgengileg og kynhlutlaus salerni eru á sömu hæð.