A yellow background with blue text saying: The future of Democracy at the top, and along the left side of the picture it says: Nordic Day 2026. To the right there is a picture of somehone raising there hand. Under this picture there is pictures of all the Nordic flags.

Dagur Norðurlanda 2026: Framtíð lýðræðisins


08:30-10:30

Þriðjudaginn 24 mars, kl. 09.00-10.30.

Húsið opnar kl. 08.30 – kaffi og léttur morgunverður verður í boði.

ATH: Það er takmarkað pláss og þátttakendur verða að skrá sig á viðburðinn – smellið hér. 

Einnig verður hægt að fylgjast með beinu streymi – smellið hér.

Lýðræði stendur á krossgötum. Upplýsingaóreiða, dalandi traust til stofnana, aukin skautun og vaxandi öfgahyggja – allt þetta veldur því að lýðræðið stendur hallari fæti víða um heim.

Norðurlöndin hafa lengi verið þekkt fyrir samfélagsgerð sem byggir á trausti og sterkum lýðræðislegum stofnunum. En með uppgangi tæknirisa er upplýsingalandslagið að breytast. Erlendir samfélagsmiðlar, knúnir áfram af viðskiptahvötum og ógagnsæjum reikniritum, gegna nú lykilhlutverki í að móta opinbera umræðu, stjórnmál og upplýsingaflæði.

Þessi umbreyting hefur skapað fordæmalausar áskoranir fyrir norræn lýðræðissamfélög. Því er jafnframt mikilvægt að spyrja: hvaða áhrif hefur hún á yngri kynslóðina?

Ungt fólk mótar nú lýðræðislega og pólitíska meðvitund sína í umhverfi sem er gegnsýrt af rangfærslum, skautun og reikniritadrifnum samskiptum. Hvernig mun það bera lýðræðið áfram ef traust þess til samborgara, opinberra stofnana – og jafnvel grunngilda lýðræðisins – á undir högg að sækja í hinu stafræna umhverfi?

Á Degi Norðurlanda 2026 köfum við ofan í þessi málefni og skoðum hvernig hægt er að styrkja lýðræðið – ekki síst með því að efla lýðræðislega vitund og samfélagsþátttöku yngri kynslóða.

Málþingið er haldið af Norrænu ráðherranefndinni og Norræna félaginu, og mun fara fram á ensku.

Dagskrá

 Opnunarorð: Dagbjört Hákonardóttir, Formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.

Lykilerindi: Clement Kjersgaard, ritstjóri og þáttastjórnandi hjá Danmarks Radio – Is Democracy on the Way Out?

 Pallborð:

  • Ragnheiður Geirsdóttir, Forseti Landssambands ungmennafélaga (LUF)
  • Dagbjört Hákonardóttir, Formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs
  • Maximilian Conrad, Prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
  • Skúli Bragi Geirdal, Sviðsstjóri Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands
  • Ingunn Lára Kristjánsdóttir, Verkefnastjóri fréttaþjónustu á samfélagsmiðlum hjá RÚV

Eyrún Magnúsdóttir, blaðamaður, mun fundarstýra.

Upplýsingar um aðgengi má finna með því að smella hér.

Aðrir viðburðir