ARCTIC WAVES
19:00-23:00
Vertu með á Arctic Waves: tónlistarhátíð norðurslóða!
Við fögnum tónlist norðurslóða í Norræna húsinu í Reykjavík á Iceland Airwaves 2023. Tónlistarmenn frá Grænlandi, Kanada og Sápmi munu koma saman og bjóða upp á einstakt tækifæri til að kanna grípandi heim tónlistar norðurslóða á Arctic Waves.
Við erum spennt að kynna nokkra af bestu tónlistarmönnum norðurslóða í þessari tónleikaröð í Norræna húsinu þar sem við munum njóta frábærrar tónlistar saman í þrjá daga. Arctic Waves er ekki bara tónleikaröð; þetta er menningarhátíð og vettvangur til að efla tónlistartengsl þvert á landamæri.
Við kynnum listamennina:
Grænland: Andachan, NUIJA, Sound of the Damned, and Tarrak
Kanada: Elisapie, Silla, and The Trade Offs
Sápmi: Emil Kárlsen, Katarina Barruk, and Niilas
Árið 2023 fer Ísland með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og sem hluti af menningarstarfi okkar kynnum við með stolti Arctic Waves á Iceland Airwaves 2023. Við erum stolt af því að eiga samstarf við Arctic Sounds tónlistarhátíðina frá Sisimiut á Grænlandi, Alianait listahátíðina í Iqaluit, Nunavut, Kanada, og samísku hátíðina: Riddu Riđđu Festivàla. Við erum líka þakklát fyrir stuðninginn frá ÚTÓN, Business Iceland, Musikkontoret Nord, Norræna húsinu í Reykjavík og Iceland Airwaves.
Arctic Waves er tækifæri til að sökkva sér niður í heim tónlistar, menningar og innblásturs. Vertu með í þessari norðurslóðaupplifun á Iceland Airwaves 2023! Lestu meira um verkefnið hérna.
Miðaverð fyrir hvert kvöld er 2000 kr og armbandshafar Iceland Airwaves fá frítt inn.
DAGUR 1. – SJÁ DAGSKRÁ OG KAUPA MIÐA.
DAGUR 2. – SJÁ DAGSKRÁ OG KAUPA MIÐA.
DAGUR 3. – SJÁ DAGSKRÁ OG KAUPA MIÐA.
Aðgengi: Aðgengi í Elissu sal er mjög gott og á sömu hæð eru aðgengileg salerni. Öll salerni í húsinu eru kynhlutlaus.